Er þetta amma þín ?

Jólagjafalisti ömmu datt óvart í mínar hendur en það sem ég bý ekki svo vel að eiga ömmu á lífi gæti þetta nýst þér.

Elskulega fjölskylda, mér datt í hug fyrir þessi jól að senda ykkur smábréf um jólagjafir. Þar sem plássið er farið að minnka hjá mér, en þið öll svo elskuleg að færa mér gjafir fyrir hver jól.

Ég biðst undan því að fá fleiri flókainniskó. Ég á orðið lager sem endist mér út ævina.

Ég vil líka segja ykkur að ég á nóg bæði af pottaleppum og svuntum.

Ég á orðið sjö flónelsmorgunsloppa úr Rúmfatalagernum, og þarf ekki fleiri í bili. Auk þess þykir mér eldrauður litur fallegri en þessi gammeldags pink kerlingalitur.

Myndir af börnum og barnabörnum eru allt í lagi, en best er að vera ekkert að setja þær í ramma, ég vil heldur setja þær inn í albúm, þar sem allir veggir eru orðnir þaktir af myndum, svo hvergi er auður blettur.

Í Guðanna bænum ekki fleiri smástyttur, hvorki gler, keramik eða tré. Ég þurfti að setja í tvo stóra fulla kassa niður í kjallara eftir síðustu jól. Og ég er orðin svo fótalúin.

Bækur eru svo sem allt í lagi, en ég á orðið 10 biblíur, les þær reyndar aldrei, og allskonar ævisögur og heilsubækur. Ef þið viljið gefa mér bækur, þá vil ég frekar Arnald Indriða eða Agötu Christie.

Og ég hlusta frekar á Led Zepplin og Nirvana en Hauk Mortens eða Karlakór Reykjavíkur.

Sem betur fer hef ég losnað við öll fótanuddtækin með því að gefa þau á tombólur, nema þetta eina sem ég nota undir blóm á svölunum.

Ég verð að segja eins og er að ég hefði í staðinn fyrir þennan dýrindis lazerboystól sem þið tókuð ykkur saman og splæstuð á mig í fyrra, viljað fá hljómflutningsgræjur eða tölvu. Sit afar sjaldan í svona stól, því það er erfitt að standa upp úr honum. Og ég nota tölvu frekar og þykir meira gaman að háværri rokktónlist.

Svo ætla ég að benda ykkur á að þið verðið að koma jólagjöfunum ykkar snemma til mín þetta árið, því ég hef ákveðið að skella mér til Kanarí um jólin, við ætlum nokkur saman, gamlingjar og djamma og djúsa. Vonandi verðið þið stillt og góð á meðan.

Sjúmst á næsta ári, ykkar amma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gaman að sjá að þetta flýgur Hulda mín, en ég samdi þetta fyrir jólin i fyrra mér til gamans;  http://asthildurcesil.blog.is/blog/asthildurcesil/?offset=20 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.10.2007 kl. 21:06

2 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Amman er fundin, gaman að því

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 29.10.2007 kl. 21:18

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nákvæmlega

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.10.2007 kl. 21:27

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hæ hæ hæ hæ.....loksins loksins fer ég að hafa tíma til að halda jólin. En fyrst er nú að kíkja í kaffi yfir heiði. Fer að verða til tímabil til að gera eitthvað annað en að skrifa og skrá sig hér og þar.

Knús til ykkar allra!!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 31.10.2007 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband