Kannski ég verði svolítið grand fyrir þessi jól !

1 bolli vatn

1 bolli sykur

4 stór egg

2 bollar þurrkaðir ávextir



1 teskeið bökunarsódi

1 teskeið salt

1 bolli púðursykur

1 bolli sítrónusafi

1 bolli hnetur

1 FULL flaska af Grand



Smakkið Grandið til að vera viss um að það sé ekki skemmt. Takið stóra

skál. Athugið Grandið aftur til að vera alveg viss um að það sé ekki

skemmt. Hellið í einn bolla og drekkið. Endurtakið. Kveikið á

hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri í stóra, mjúka skál. Bætið 1

teskeið útí og hrærið aftur. Athugið hvort Grandið sé nokkuð farið að

skemmast, fáið ykkur annan bolla. Slökkvið á hrærivélinni. Brjótið tvær

skurnir og bætið í skálina og hendið út í bollanum af þurrkuðu ávöxtunum.

Hrærið á kveikivélinni. Ef þurrkuðu ávextirnir festast við hrærararrarna

losið þá þá af með rúfskjárni. Bragðið á Grandinu til að athuga magnið.

Næst, sigtið 2 bolla af salti. Eða einhverju. Hverjum er ekki sama.

Athugið Grandið. Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar. Bætið einu

borði. Skeið. Af sykri eða eitthvað. Hvað sem þú finnur nálægt. Smyrjið

ofninn. Stillið kökuformið á 250°. Gleymið ekki að hræra í stillaranum.

Hendið skálinni út um gluggann. Athugið Grandið aftur. Farið að sofa.







(Finnst nokkrum hvort sem er ávaxtakökur góðar?).




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Þetta er grand! En ég get því miður ekki notað þessa aðferð því ég hef ekki getað bragðað Grand síðan 1995 þegar ég drakk ótæpilega á því á skólaferðalagi. Ældi m.a. í vasa kennarans, sem er ekki gott .

Heimir Eyvindarson, 1.12.2007 kl. 14:32

2 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Þú getur þá bara notað eitthvað annað, eins og beilys, serrý nú erða bara það sem þér finnst gott eins og rauðvín

Varstu ekki í Skotlandi þegar þú varðst svo óheppin að drekka ótæpilega

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 1.12.2007 kl. 15:55

3 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Jú það var einmitt á þeim slóðum

Heimir Eyvindarson, 7.12.2007 kl. 23:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband