Af teflonheilanum og súkkulaðirassinum

er það að frétta, að ég er búin að skrá mig og teflonheilann minn í fjarnámið, sem byrjar eftir helgi og á þessari önn er það tölvufræðileg sálfræði W00t við sjáum hvernig teflonheilanum mínum gengur með það. Legg samt ekki á hann að taka aftur þrjú fög með fullri vinnu Blush þó svo að það hafi gengið og ég náð öllu þá gerði ég nú lítið annað en að vinna og læra Halo

Ekki er hægt að skilja súkkulaðirassin út undan svo nú mæti ég með hann reglulega í ræktina, sé það eiginlega ekki fyrir mér ef ég myndi skilja hann eftir heima W00t

En ég er ekki HÆTT að borða súkkulaði og um helgina er ég að spá í að gera rosalega djúsí íssósu sem sá hana Nigellu gera (það er allt svo girnilegt sem hún gerir svo ég tali nú ekki um þegar hún smakkar á því) reyndar ekki með súkkulaði í Pinch en ég get fengið mér súkkulaðís með erþaðeggibara

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband