Munið að endurnýja

Klaufdýrið mitt getur seint talist heppin Crying  (enda ekki kallaður klaufdýr fyrir ekki neitt)

Í gærkvöldi sat ég í makindum mínum að læra, þá sé ég útundan mér að bíll kemur á húsinu, ekkert óeðlilegt við það, nema að ég fer að taka eftir bláum blikkandi ljósum W00t ég stend upp og fer að kanna hvað sé á seyði. Er ekki lögreglubíll í hlaðinu W00t og sé hvar klaufdýrið fer inn í lögreglubílinn.

Hann braut ekkert af sér, sem betur fer, mældist á 40 km hraða, en lögreglunni fannst hann taka beygjuna inn Klettahlíðina "full harkalega" Bandit En það sem kom í ljós þegar hann sýndi ökuskirteinið var ekki gott ÞAÐ VAR ÚTRUNNIÐ W00t  Svo nú er klaufdýrið próflaust og þarf að fara í upprifjunarökutíma til þess að fá ökuréttindin sín aftur.

SVO ELSKURNAR MÍNAR MUNIÐ AÐ ENDURNÝJA ÖKUSKIRTEINÐ Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ Æ vesalings klaufdýrið þitt  Vonandi gengur það allt saman vel.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.2.2008 kl. 19:33

2 identicon

Já svona er þetta Hulda mín, okkur hefur eitthvað misfarist við uppeldið á þessum elskum. Minns fékk nefnilega sekt fyrir sömu sakir um daginn - og fannst það ekkert tiltökumál by the way!!!

Soffía Valdimarsdóttir (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband