Góða helgi :o)

Hver var Jesú

Þrjár sannanir fyrir því að Jesú var mexíkani.

- Hann hét Jesú

- Hann talaði tvö tungumál

- Hann hafði aldrei frið fyrir yfirvöldum



Sömuleiðis eru líkur á því að Jesú hafi verið svertingi.

- Hann kallaði alla 'bræður sína'

- Hann var hrifinn af gospel

- Hann fékk aldrei sanngjarna málsmeðferð hjá yfirvöldum



En það gæti líka vel verið að hann hafi verið Gyðingur.

- Hann fetaði í fótspor föður síns

- Hann bjó heima þangað til að hann var 33 ára

- Hann notaði ólífuoliu



Þrjár sannanir sem sýna sterklega að Jesú hefði vel getað verið ítalskur.

- Hann baðaði út höndunum þegar hann talaði


- Hann drakk vín með hverri máltíð

- Hann var viss um að mamma sín væri hrein mey og mamma hans var viss um það að hann væri Guð.



Þrír möguleikar sem sýna að hann hefði getað verið frá Kaliforníu.

- Hann lét aldrei klippa sig

- Hann gekk berfættur

- Hann lagði grunn að nýrri trú



En það er þó mjög líklegt að hann hafi verið Íri.

- Hann giftist aldrei

- Hann elskaði að vera úti í náttúrunni

- Hann var sífellt að segja sögur



EN....það líklegasta er að Jesú hafi verið KONA.

- Hann var neyddur til að fæða fjölda manns án fyrirvara þótt ekki væri nokkur matur til !!!!!!

- Hann reyndi að láta rödd sína heyrast meðal fjölda karla sem ekki föttuðu baun.

- Þrátt fyrir að hann væri dáinn, varð hann að rísa upp aftur því það var meira sem hann átti eftir að gera !!!!!!!!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

....mikið til í þessu!!

Jæja..mér finnst orðið frekar langt síðan við fengum okkur kaffitár saman. Best að fara að rúlla austur fyrir fjall fljótlega. Svo er náttla heimilið okkar enn á sama stað ef þið eruð á ferðinni.

knús 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.9.2008 kl. 18:07

2 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Æ já við þurfum að hittast sem fyrst og já við eigum eftir að sjá breytingarnar hjá ykkur

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 19.9.2008 kl. 18:20

3 Smámynd: JEG

Tær snilld.  En hver ætli niðurstaðan sé???? Ég held að Jesú hafi verið Mexikanskursvertingi, alinn upp sem gyðingur á Ítalíu í Kalíforníuhverfi hjá Írum og jú kvenkyns.

Knús og klemm úr sveitinni sem er rennandi blaut og nánast fokin burt.

JEG, 19.9.2008 kl. 23:19

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahahaha góð

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.9.2008 kl. 14:42

5 identicon

Þú ert náttúrulega mesti snillingurinn ever. Við sitjum hérna hjónaleysin og hlæjum okkur máttlaus að orðsnilli þinni mín kæra

Álný (IP-tala skráð) 21.9.2008 kl. 22:13

6 Smámynd: Emma Agneta Björgvinsdóttir

algjör snild

Emma Agneta Björgvinsdóttir, 22.9.2008 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband