Hvað kostar heili ?????

 Á spítalanum voru ættingjarnir saman komnir á biðstofunni þar sem einn
fjölskyldumeðlimur lá mjög veikur. Loksins kom læknirinn þreytulegur og
dapur. "Ég er hræddur um að ég færi ykkur slæm tíðindi" sagði hann og
horfði upp á áhyggjufull andlit ættingjanna.

"Eina von ástvinar ykkar er sú að hann fái heilaígræðslu. Þessi aðgerð
hefur ekki ennþá verið prófuð til hlítar og er mjög áhættusöm en er
jafnframt eina vonin í þessari stöðu. Tryggingarnar greiða allan kostnað af
aðgerðinni en þið þurfið að greiða sjálf fyrir heilann". Ættingjarnir sátu
hljóðir og meltu með sér þessar fréttir. Eftir dálítinn tíma spurði einn
þeirra. "Hvað kostar heili?" Læknirinn svaraði strax. "Karlmannsheili
kostar eina milljón en kvenmannsheili kostar hundrað og fimmtíu þúsund".

Allir ættingjarnir urðu frekar vandræðalegir en karlmennirnir forðuðust að
horfast í augu við konurnar. Nokkrir gátu ekki á sér setið og glottu og
jafnvel flissuðu. Einn þeirra gat þó ekki hamið forvitni sína og spurði
þeirrar spurningar sem alla langaði að spyrja að. "Af hverju er
karlmannsheilinn svona mikið dýrari"? Læknirinn brosti umburðarlyndur af
einfeldni mannsins og útskýrði þetta fyrir öllum hópnum. "Þetta er bara
þetta venjulega verð sem sett er upp, við getum ekki selt kvenmannsheila
dýrari en þetta því þeir eru notaðir"!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

LOL Þessi er góður.

Bryndís R (IP-tala skráð) 27.4.2008 kl. 22:46

2 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Nákvæmlega!

Soffía Valdimarsdóttir, 28.4.2008 kl. 12:13

3 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Fannst þessi bara hárrétt tímasettur, þar sem minn heili er á fullu að lesa fyrir próf og ljúka síðustu verkefnaskilunum.....................get ekki séð að karlpeningarnir á þessu heimili séu yfirhöfuð að nota sinn

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 28.4.2008 kl. 18:02

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband