Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Mússisjúk

Ekki nóg með að þjáist að kertasýki heldur er ég orðin mússisjúk líka eins og Eivör Pálsdóttir. Þessi sýki hljómar einhvern vegin svona ( og er bráðsmitandi)

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4301897/4

Hansara varir bleytar og blíðar

Fagrari varir aldrig mær bíða

Og ongan tíð motti mær tunga so mjúk

Ella eri eg bara mússisjúk

Hansara varir mær eru ein gáta

Meg kyssa og mapa pa heilt annan máta

Og ongan tíð motti mær tunga so mjúk

Ella eri eg bara mússisjúk

Hansara varir gera meg villa

Lokka meg nærri og kitla meg illa

Nei ongan tíð motti mær tunga so mjúk

Ella eri eg bara MÚSSISJÚK

Og ef þú veist hvað MÚSSISJÚK er vinsamlega skráðu athugasemd


Kertasjúk

Nú er sá tími hjá mér þar sem ég er kertasjúk Smile Að vísu leggst ég ekki í rúmið af þessari kertasýki minni heldur loga hér sprittkerti í hverju horni. Helst lítið sem ekkert rafmagnsljós bara kertaljós Wink Jú það er náttúrulega betra að vera í náttfötum (þar sem ég er haldin þeirri sýki líka) svo ég tali nú ekki um þegar verðrið er eins og það er í kvöld. Logn smáúði og þoka niður eftir öllum hlíðum bara rómatískt og notalegt.

En svo fýkur öll rómantíkin út um gluggan um leið og rafvrikinn minn opnar útidyrnar Kissing og kemur askvaðandi inn og segir:

Hva er allt RAFMAGNSLAUST elskan Gasp


ÁFRAM HAMAR

Frábært hjá strákunum í Hveragerði Smile

Þeir efuðust aldrei mennirnir á mínu heimili Smile

TIL HAMINGJU Whistling


mbl.is Hamar, Hvöt og Víðir upp í 2. deild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðlaunabotninn

Jæja nú þarf ég aðstoð ykkar að velja úr innsendum "botnum" við fyrripartinn sem ég setti inn fyrir helgi. Þið getið skoðað þá í athugasemdum á færslunni hér fyrir neðan.

Ég hafði það nú á tilfinningunni að út úr þessu kæmi frekar "blautlegt ljóð" því að fyrriparturinn bauð alveg upp á það.

Svo nú er bara að velja það ykkur finnst best.....


Fyrripartur

Af því að gatan mín er ekki "skáldagata" bið ég ykkur að botna þennan fyrripart

Blómstrandi og brókarlaus

Bið ég þig að geyma


Hef ætlað að blogga alla vikuna

um:

Blómstrandi daga (allir með)

Í túninu heima (fyrir þá sem ekki komast á Blómstrandi daga)

Upphaf skóla (þar sem gulldrengurinn þarf ekki að fara með að versla skóladót því áhugi hans á skóla sé takmarkaður að eigin sögn)

Lausn á vanda miðborgarinnar (bara láta Stuðmenn spila í miðbænum að nóttu til um helgar)

Snyrtuna mína (sem er betur fer nuddari líka)

Færeyinginn (frændann sem nú dvelur á Íslandi)

MÍGRENI (fékk eitt stykki kast í gær, sem betur fer líður langt á milli þeirra hjá mér)

Slóróveirur (sem hrjáir mig í dag eftir átökin við MÍGRENIÐ)

Skáldagötur í Hveragerði (mín gata gleymdist nefnilega)

Kattarhald í 810 (á ekki kött og nenni ekki að fá þá óboðna í heimsókn)

Og svo allar flottu blogghugmyndir mínar sem ég fékk þegar langt var í tölvuna og þar með voru þær í útrýmingahættu og litu aldrei dagsins ljós!!!

 


Hefur kærleikinn kyn ???

 Frábær áletrun á borðanum !!!!!!



Brókarlaus helgi

er það kallað á mínu heimili þegar börnin eru að heiman og hjónin ein í kotinu Wink Veit ekki hversu mikið "brókarlaus" þessi helgi er búin að vera Errm En ég er að mestu búin að vera "home alone" Crying Unglingurinn og tengdadóttir fóru norður svo austur á MÍNUM bíl með kerrukotið í eftirdragi og gulldrengurinn fór vestur og verður fram á þriðjudag að tína ber og veiða í soðið W00t vonandi.

Rafvrikinn er búin að vera mjög natin að sinna "viðhaldinu" en sá sér fært um að fara með sína heitkonu á drossíu unglingsins á menningarnótt í gærkveldi W00t Við höfðum einmitt orð á því að í allri mannmergðinni hittum við bara fólk sem við umgöngumst dags daglega og ekki að það sé neitt slæmt nei af og frá Wink áttum mjög góða stund á Klambratúni með þeim.

En við gátum nú eytt smá tíma í að karpa um nafnið á túninu svo úr varð að ég fór á Klambratún en rafvirkinn á Miklatún Sideways

En í kvöld "slasaði" rafvirkinn sig W00t Hann fór upp á loft og rak hausinnn í nagla Shocking og hér var allt eins og í versta sláturhúsi Frown Svo ég segi honum að drífa sig til læknis það þurfi örugglega að sauma Frown hann þrjóskaðist við en lét svo til leiðast ef hann færi einn Heart Já hann gat alveg farið einn mín vegna Shocking

Eftir tuttugu mínútur kom hann heim (jafn langur tími og tekur að keyra á milli Selfoss og Hveragerðis fram og til baka) og ég voða hissa W00t Bara kominn !!!!

Nei hann hefði getað sparað bensínið því þetta var víst bara SMÁSKRÁMA Blush og nú liggur hann í þunglyndi yfir því að hafa farið til læknis út af SMÁSKRÁMU.........

 



Fjármálamarkaðir

eru fyrir mér eins og hver annar sýndarveruleiki Blush Þið verðið að fyrirgefa hvað ég er græn Crying

En að húsnæðislán í Bandaríkjunum geti haft áhrif á íslenskan fjármálamarkað, það er ég ekki með nokkru móti að skilja Frown 

En eitt er ég að skilja W00t þetta er eins og DOMINO ef einn kubburinn dettur þá hrynur allt heila klappið !!!!


Rómantísk lautarferð !!!!!

Við hjónin vorum á leið í stórafmæli til Bóbó bróðirs á Blönduósi (hvað eru mörg BÉ í því) á laugardag Grin Veðrið var með eindæmum gott hægur andvari og um 18 stiga hiti Cool Okkur fannst því alveg tilvalið að skella sér yfir Kjöl Cool Bara dóla okkur í rólegheitum með fjallhringinn í kringum okkur og alveg einstakt útsýni já og jafnvel nesti og fara í smá lautarferð Wink

Svo ég dreif í því að hita kaffi nesta okkur jú og smá mjólkurdreitil í þessum líka patent ferðaumbúðum Smile Og svo var lagt í hann, Suðurlandið skartaði sínu fegursta á laugardag og við Reykholt í Bistkupstungum var 20 stiga hiti (þökk sé loftkælingunni í bílnum) fjallsýn með eindæmum Sideways Áfram héldum við í átt að Hveravöllum og þar skyldi nestað og notið blíðunnar.

Þegar við vorum komin áleiðis norður á bóginn fór að þykkna upp og útsýnið ekki alveg eins og við reiknuðum með. Er við komum svo á Hveravelli var komin norðan blástur 7 stiga hita og örlaði á regni Errm Ekki fýsilegur kostur til að nesta Errm svo við héldum leið okkar áfram Smile og ákváðum að stöðva þegar hitastigið færi yfir 10 gráður Cool

Upp við Blöndulón var hins vegar komin svarta þoka hitastigið enn 7 stig og ekkert sem togaði okkur út í móa að nesta Shocking

Rafvirkinn fékk þá snilldarhugmynd að við fengjum okkur bara smá kaffisopa í bílnum Smile Það kostaði að ég þurfti að TORÐA mér afturí, eins liðug og nett ég er tókst það með ágætum að koma mér að kaffinu Wink En ekki vildi betur til að þegar ég var á leið í framsætið að mér tókst að BRJÓTA Blush arminn á milli framsæta Blush

En kaffið var kærkomið Smile eða þangað til að mjólkin kom út í það Frown hún var SÚR W00t

En við komumst klakklaust á Blöndós og vorum í góðu yfirlæti þar enda bróðir minn og mágkona yndisleg heim að sækja og eiga ekki í vandræðum þegar kemur að veisluhöldum Wink

En heim fórum við eftir þjóðvegi 1 og til þess að vera örugg með notalega "lautarferð" var nestað í Hreðarvatnsskála Grin


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband