Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Á síðustu

og verstu tímum eða á meðan ný stjórn hefur verið að myndast höfum við í Klettahlíðinni verið að dunda eitt og annað.

Gulldrengurinn er nánast komin með annað lögheimili í Bláfjöll, rafvirkinn er búin að púsla og ég sem ekki kemst á þjóðbúninganámskeið (upppantað, biðlisti) hef verið með eitthvað á prjónunum sem .................................... kemur í ljós!!!

En veðrið hefur verið yndislegt síðustu viku nánast svona upp á hvern dag

Klaufdýrið mitt hefur grátið snjóinn á suðurlandi en fékk snjóinn sinn í gær, sem varð til þess að hann frestaði komu sinni um þessa helgi og lætur ekki sjá sig fyrr en um miðjan febrúar. Það er snjósleðinn sem gengur fyrir en ekki mamma W00t

En í morgun mátti ég kúra aðeins lengur, átti að mæta í skólann, svo ég sparkaði rafvirkjaræflinum fram úr þegar klukkan hringdi og hann dröslaðist út með gulldrenginn, þeir voru varla farnir þegar ég heyrði í þeim hérna inni aftur........................ég stökk fram úr og spurði hvort ekki væri allt í lagi..

Jú klukkan er bara 10 mínútur í sjö Sleeping

Kom vel á vondann, þar sem rafvirkinn hafði verið að vesenast í rafmagninu hér í gær með þeim afleiðingum að það sló út og gerði það að verkum að ég stillti verkjaraklukkuna klukkutíma of fljóta, en enginn er verri þó að hann vakni snemma Shocking


Afturelding 100 ára

á þessu ári. Það er ánægjulegt að hafa alist upp í því félagi og slitið barnskónum.

Ásamt því að hafa vígt fyrsta íþróttahús bæjarins, þá er mér sönn ánægja að segja ykkur frá því, að nokkrar frábærar stelpur stofnuðum fyrsta meistaraflokk kvenna í knattspyrnu innan UMFA 1982- 1983. Sú elsta var aðeins 16 ára og fyrsta sumarið þá töpuðum við öllum lekjum nema tveim síðustu.

En eins og þeir vita sem fylgjast með kvennaknattspyrnu hefur kvennlið Aftureldingar farið á kostum

En hér er lið Aftureldingar sumarið 1983

 


Í dag er ég döpur

Döpur yfir ástandinu

döpur yfir því hvernig er komið fyrir litlu dugmiklu þjóðinni minn

döpur yfir því að allir gleymdu sér í góðærinu, sváfu á verðinum, því hér var allt svo gott og hér leið öllum svo vel. Of vel, að í febrúar treysti sér enginn til að rísa upp og segja eitthvað óþægilegt, eitthvað sem kæmi okkur úr jafnvægi vellíðunnarinnar. Eitthvað ljótt og vont.

Í dag er ég döpur yfir því að enginn sé tilbúin að STANDA UPP segja okkur sannleikann, hversu ljótur og óþægilegur sem hann er.

Ég er döpur af því að ég held að hér finnist ekki sá leiðtogi sem við þurfum nú á ögurstund, en ef þú ert þarna STATTU UPP segðu okkur sannleikann, því fyrr því betra, er að fá drulluskítugu tuskuna í andlitið svo við getum byrjað að þrífa upp óþverran.

Öðruvísi er ekki hægt að gera hreint fyrir nýja tíma


Þjóðbúningur í lágmarksnotkun !!!

Ástæðan fyrir færslu minni að þessu sinni er sú að við í vinnunni ætlum að fara halda þorrablót með þjóðlegu ívafi. Smile 

Jú allt gott og blessað og höfum við sem í stjórn sitjum, hvatt þær konur sem eiga þjóðbúning að mæta í honum. Wink

En viðbrögðin sem við höfum fengið eru ansi misjöfn Blush .......... eruð þið vitlausar að mæta í þjóðbúning á þorrablót !!!!!!!

Ég sem dvalið hef löngum í Færeyjum þar sem konum jafnt og körlum þykir sjálfsagt að flagga þjóðbúning sínum við hvert tækifæri og eru mjög stolt af því, er mjög hissa, vægast sagt !!!!!!!

Veit ekki hvort nokkur sé sammála mér, en mér er nokk sama.

Það er kannski ekki nema von að við séum á vonarvöl sem þjóð, þjóð sem situr með þjóðbúninga sína lokaða ofan í kistum, jafnvel í bankahólfum, af því að við tímum ekki að vera þjóðleg nema við svo hátíðleg tækifæri að telja mætti þau á fingrum annarra handar yfir heila mannsævi !!!!!!

Þjóðbúningur á að endurspegla þjóðina hverju sinni og þegar að svo er komið fyrir þjóð að ekki er á allra færi að eignast þjóðbúning, er hann þá þjóðbúningur ????????

Nú vil ég hvetja hönnuði þessa lands að koma fram með tilbrigði við íslenskan þjóðbúning, sem endurspeglar þjóðina ásamt því að leiða saman gamla og nýja tíma, sem konum þessu guðsvoluðu þjóðar væru stoltar af og hefðu fjárráð til að flagga slíkum búning við öll tækifæri.

Íslenskur búningur

 

 

Hefðbundinn færeyskur búningur

Tilbrigði við færeyeskan þjóðbúning


13 janúar

vaknaði við vekjarklukkuna eins og venjulega, langaði að liggja aðeins lengur...... en skyldan kallaði svo ég ætlaði að stökkva lipurlega fram úr, líkt og ég hafði alltaf gert, en fann að ég gat það ekki !!!!!!!

Helv.... stöðluðu 80´s taktarnir í mjöðminni voru að gera út af við mig og fann hvernig ég varð að smokra mér fram úr rúminu í  "slow motion"  og alveg fram á baðherbergi, leit í spegilinn shit það hlaut að vera það var í dag sem ég varð fjörutíuogeinsárs.................................................

 

 


Frændur

vó hvað ég varð ánægð áðan, ramba stundum inn á youtube og hef leitað eftir uppáhldslaginu mínu, það er að segja sem ég átti þegar ég bjó í Færeyjum og viti menn í kvöld fann ég það gjörið svo vel:


Sunnudagsmorgun

og tómlegur kofinn núna. Jólaskrautið komið í kassa og hurðaskellirinn minn komin vestur, bæði tómlegt og hljóðlegt.

Dagarnir þeysast áfram, ég er enn í starfsnáminu og verð út febrúar.

Af vesturförum er allt gott þó svo útlitið með vinnu hjá klaufdýrinu hafi breyst en það kemur eitthvað annað í staðinn.

Gulldrengurinn er á fullu í skólanum og hann kvaddi jólin á viðeigandi hátt í vikunni

En nú bíður önnur "gerandisvika" (eins og vinir mínir í Færeyjum kalla vinnuvikuna) og ég kemst vonandi í blogggírinn fljótlega.......


Í dag

fær þessi koss í tilefni dagsins Wizard


Smá tregi í dag

Ungarnir yfirgáfu hreiðrið í morgun.

Já klukkan tíu í morgun fóru þau af stað með fullan sendibíl og góða vini í farteskinu, til aðstoðar og ég verð að segja ég á eftir að sakna þeirra alveg svakalega.

Síðast fluttu þau innan bæjarmarkana, fékk þá reglulega að heyra hurðaskelli klaufdýrsins, en núna fóru þau alla leið vestur á Reykhóla og við sjáum þau ekki dögum saman, veður eitthvað skrítið.

En þetta er gangur lífsins veröldin brosir við þeim og þau við henni

gangi ykkur vel elskurnar mínar Heart


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband