Gleðilega hátíð

Í glugganum ég geymi skóinn
við arininn ég hengi upp sokk
vonast til að fá eitthvað annað
en helv.... fokking fokk

Nei á maður ekki að vera aðeins jólalegri

Kveiki fjórum kertum á
kreppu þjóðar ýti frá
kasta kveðjum vinum á
kærleik og friðar njóta má


Efnileg söngkona

Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af framtíðinni ef unga fólkið er svona efnilegt, þessi 12 ára dama hún Sigga Mæja er yndisleg og ekki spillir að hún er fjölskyldunni. Gefið ykkur tíma til að hlusta hún samdi lag og texta sjálf Smile


Ég er að tapa trúnni


Konur yfir fertugt - Andy Rooney 60 mín.


Eftir því sem ég eldist, met ég mest konur yfir fertugt og hér eru nokkrar
ástæður fyrir því:

Kona yfir fertugt mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig "hvað ertu
að hugsa?"
-Henni gæti ekki verið meira sama.

Ef kona yfir fertugt vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir
því.
-Hún gerir eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en
leikurinn.

Konur yfir 40 eru virðulegar í framkomu. Þær fara sjaldan í öskurkeppni við
þig í óperunni eða á fínum veitingastað.
- Nema þú eigir það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig ef þær halda
að  þær komist upp með það.

Eldri konur eru örlátar á hrós, oft óverðskuldað.  
-Þær vita hvað það er að vera ekki metin að verðleikum.

Konur verða skyggnar með aldrinum. >
-Þú þarft aldrei að viðurkenna misbresti þína fyrir þeim.


Þegar þú getur litið framhjá einni eða tveimur hrukkum er kona yfir 40
langtum kynþokkafyllri en yngri kynsystur hennar.

Eldri konur eru hreinar og beinar. -Þær segja þér eins og skot að þú sért
asni ef þú hagar þér sem slíkur.Þú þarft aldrei að fara í grafgötur með
hvar þú hefur þær.


Já, við dásömum konur yfir fertugt af mörgum ástæðum.

Því miður er það ekki gagnkvæmt. Því fyrir hverja
glæsilega, smarta og vel
greidda konu yfir fertugt, er sköllóttur,
vambmikill forngripur í gulum buxum gerandi sig að  fífli fyrir 22gja ár
gengilbeinu.

Konur, ég biðst afsökunar.

Til allra þeirra karla sem segja; "Afhverju að kaupa kúna þegar þú getur
fengið mjólkina frítt?" þá eru hér nýjar upplýsingar:

Nú á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum.

Hvers vegna?

Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að kaupa
heilt svín þótt þær langi í smá pylsu!

Andy Rooney


Ísland er stjórnlaust

Ísland er stjórnlaust, því enginn því stjórnar
Ísland er fleki af dýrustu gerð
Ísland er landið sem Flokkurinn fórnar
Ísland á reki í sjónum þú sérð

Ísland í forsetans orðanna skrúði
Ísland sem bankana auðmönnum gaf
Ísland sem sonanna afrekum trúði
Ísland er land sem á verðinum svaf

Íslensk er þjóðin sem allt fyrir greiðir
Íslensk er krónan sem fellur hvern dag
Íslensk er höndin sem afvegaleiðir
Íslensk er trúin: "Það kemst allt í lag"

Íslensk er bjartsýna alheimskuvissan
um íslenskan sigur í sérhverri þraut
Íslensk er góðæris átveisluhryssan
sem íslenskan lepur nú kreppunnar graut

Ísland er landið sem öllu vill gleyma
sem Ísland á annarra hlut hefur gert
Íslenska þjóð, þér var ætlað að geyma
hið íslenska nafn sem þú hefur nú svert

Íslandi stýra nú altómir sjóðir
Ísland nú gengur við betlandi staf
að Íslandi sækja nú alls konar þjóðir
Ísland er sokkið í skuldanna haf.

Höfundur Hallgrímur Helgason.


Þú færð bros :o)

Stundum þurfa allir að staldra aðeins við                                       

Stundum verður þörf fyrir önnur sjónarmið

Annars fer allt hér í sama far

Þetta hef ég séð og þess vegna ég bið

Þig að koma heimsókn og hafa það sem sið

Blásum líf í gömlu glæðurnar

Þú færð bros Smile frá mér í sérhvert sinn

Þú lítur hingað inn

Þú ert meir en velkomin hér

þú færð mitt bros Smile já það er fyrirséð

og faðmlag fylgir með

Og síðan þegar ferð þú frá mér

Þér fylgir bros Smile 

Áður en þú veist kemur aftur sólskinið 

Alltaf verður þá aðeins betra útlitið

Og þú býrð til nýjar væntingar

Já, öllu er hægt að breyta

Það opnar lokum hlið

það er alltaf einhver leið til að bæta ástandið

Þá við eignumst góðar minningar

Þú færð bros Smile   

(Friðrik Sturluson)


Maður kreppunnar

Ef þið hafið misst af þessu, þá verðið þið að horfa, legg til ef ekki tekst að fá gjafamál frá dómsmálaráðneytinu að við leggjumst á eitt og söfnun fyrir því svo unnt verði að sækja það

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4505581/2009/09/10/0/


Færeyingar

eru sko sannir vinir

Enda erum við mikið búin að spá í það hvort að eina rétta í stöðunni sé ekki bara að flytja til Færeyja


mbl.is Høgni Hoydal gagnrýnir Norðurlöndin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blómstrandi helgi

að baki, mig langar bara að þakka fyrir mig

Þessa hugmynd áttu Pétur, Áslaug og Birna og mér finnst hún frábær og ætti í rauninni skilið verðlaun Smile

Annars eru blómstrandi dagar orðnir eins og jólin..... hátíð hefðarinnar

við í rauða hverfinu

og pallapartý hjá okkur, hér er klaufdýrið mitt í essinu sínu Heart


Þó líði ár og öld

þá er ég hérna ennþá og allt mitt hafurtask.....hef ekki nennt að blogga um ástandið, það eru nógu margir sem sjá um það svo að allt öðru

Nú er blómstrandi helgi framundan og á morgun fer þessi þvottur á snúruna, einu sinni enn myndi einhver segja Smile en góða helgi

DSC01176


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband