Klaufdýrið

er ekki kallað klaufdýr fyrir ekki neitt Pinch ef hann fer í leit (með hjálparsveitinni) þá týnir hann einhverju eins og símanum sínum (þakka fyrir hann týni ekki þeim sem leitað er að)

Í dag skiptu þeir feðgar svo um bíl við mig, því þeir voru svo margir sem þurftu að komast í vinnuna og betra að fara á einum bíl Errm ekki vildi betur til en það að klaufdýrið bakkaði á staur á fína bílnum hennar mömmu sinnar svo útkoman varð svona :


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ elskuleg ekki er þetta gott. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2008 kl. 12:02

2 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Æ, ekki kalla blessaðan drenginn klaufdýr þó hann flýti sér kannski einum of. Hafa ekki flestir bumpað bílrassi einhvers staðar í einhvern tíma?

-- Og meðal annarra orða: Það er búið að setja upp nýtt námskeið fyrir mig eftir páskana.

Góð kveðja í bæinn

Sigurður Hreiðar, 18.3.2008 kl. 15:02

3 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Takk Ásthildur, og gaman að sjá þig í bloggheimum eftir hvíldina Sigurður, en ef þú sæir klaufdýrið mitt upp á sitt besta hefðir þú fullan skilning á nafngiftinni

Ég er sem betur fer lánsamur ökumaður og hef látið staura og þess háttar alveg eiga sig

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 18.3.2008 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband