HEPPIN

eða hvað !!!! Ekki bara ég heldur öll mín fjölskylda, bæði í móður og föðurætt, erum svo ROSALEGA vel að Guði gerð hvað varðar augabrýr að það hálfa væri nóg Pinch

Á vissum aldri þá er manni ekki alveg sama um allan þennan hárvöxt sem um getur á augabrúnunum og gerir því allt sem í valdi stendur til að sporna við ÞESSU Errm

Nú er svo komið fyrir mér að ég þarf að láta plokka augabrýrnar (hjá fagakonu) oftar en ég fer í klippingu W00t nér ég er ekki að plata (annars liti ég út eins og bróðir minn sem gekk lengi vel undir nafninu, bróðir þinn með augabrýrnar, af vinkonum mínum sem áttu erfitt með að muna nöfnin á þeim öllum þ.e.a.s. bræðrum mínum 5) og þess á milli þarf ég SJÁLF að plokka annan hvern dag Crying ógrátandi. Þessa dagana er fagkonan í fríi Cool og plokkarinn minn (sá allra besti) orðin úr sér gengin. Jú jú ég fór og ætlaði að kaupa nýjan NEI ÞAÐ ER HÆTT AÐ FRAMLEIÐA HANN svo ég finn bara annann Wink Þennan máuðinn er ég búin að fjárfesta í tveimur nýjum plokkurum, sem hvorugir gera gagn, OG NÚ LÍT ÉG ÚT EINS OG BRÓÐIR MINN MEÐ AUGNABRÝRNAR Blush

Ekki misskilja þetta Bóbó minn Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Brúnir,,,, augabrúnir

Högni Jóhann Sigurjónsson, 1.4.2008 kl. 23:32

2 identicon

Við erum nú svo langflottust svona vel brýnd........... En þetta er rétt hjá þér á ákveðnum aldri er þetta óþarflega tímafrekt :)

kveðja

Dísa FRÆNKA (sem líka er með augabrúnir ættarinnar :)

Dísa frænka (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 11:15

3 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Augnabrýr,,,,,augabrúnir,,,augnabrúnir....setur þú í brúnirnar Högni minn

Þakka mínu sæla frænka að ég er ekki ein um þetta vandamál og ég á HEILA fjölskyldu sem styður mig

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 2.4.2008 kl. 18:10

4 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Hulda mín þú skalt bara vera þakklát fyrir brýrnar góðu því ég hef það fyrir satt að ´´sumir hafi verið þeir menn sem ekkert illt, óhreint eða draugar, þorir framan að og veldur það því að annaðhvort eru þeir skyggnir eða þeir hafa loðinn kross á brjóstinu eða þeir eru sambrýndir´´

Soffía Valdimarsdóttir, 2.4.2008 kl. 20:11

5 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Þakka fyrir að draugarnir heltaka ekki "litla" kroppinn minn

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 2.4.2008 kl. 21:20

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha Hulda mín, hann bróðir þinn er sætur, en ég skil að þú viljir ekki vera með augnabrúrnirnar hans, þær eru karlmannlegar. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 00:32

7 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Ég á bara sæta bræður Ásthildur

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 3.4.2008 kl. 15:32

8 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Högni Jóhann Sigurjónsson, 4.4.2008 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband