Engin gleðiganga

Búin að vera með gulldrenginn á fótboltamóti á Selfossi alla helgina og ég verð að segja að það var engin gleðiganga hjá drengjunum.....hvert tapið á fætur öðru, en það var ekki eins og að þeir hafi barist af öllum sínum kröftum, hinir voru einfaldlega betri já og einhver verður að tapa. Æ þessi grey gera sér alltaf svo miklar vonir

Baráttan um boltann
En eitt verð ég að segja nágrönnum mínum á Selfossi til hróss, mótið tókst frábærlega vel hnökralaust enda öll aðstaða til fyrirmyndar. Lagt var í öll smáatriði eins og t.d. nöfnin á völlunum
Þrátt fyrir lélegt gengi brostu þessar elskur út af eyrum og höfðu gaman af að spila fótbolta í góðu veðri, góðum aðstæðum og frábærum félagsskap Smile
Fórum svo í gærkvöldi í veðurblíðunni í fjöruna við Ölfusárósa

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Æj það er nú alltaf skemmtilegra þegar vel gengur sko.

Eigðu ljúfan dag og kveðja úr sveitinni.

JEG, 11.8.2008 kl. 14:13

2 identicon

Maður verður svo leiður fyrir þeirra hönd þegar þeim gengur ekki vel. En það gengur bara betur næst

Lísa Margrét Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 15:00

3 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Já hann gengur misjafnlega þessi bolti en þeir virðast ekki gefast upp við mótlætið og það er fyrir öllu kannski.

Gengur betur næst - hlakka allavega til að fá ykkur upp í 4 flokk - það verð ég að segja.

Soffía Valdimarsdóttir, 11.8.2008 kl. 15:06

4 identicon

Sæl og blessuð

Þið Snorri hittust víst á mótinu. Nú skil ég þennan mikla áhuga á Mosó, hann hefur verið heilaþveginn þegar þú varst að passa hann. Hann vill hvergi annarsstaðar vera(:

Kveðja frá Flúðum

Ingibjörg Bjarney Baldursdóttir (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 17:11

5 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Þakka ykkur stelpur, já mömmuhjartað á jafn bágt og grengurinn

Heil og sæl Ingibjörg, já gaman að hitta Snorra fannst vænt um að hann myndi eftir mér, og maður laumar nú ýmsu inn á þessi blessuð börn  en ætli það sé ekki áhugi á einhverju öðru en fornum frægðarsögum frá mér

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 11.8.2008 kl. 17:34

6 Smámynd: Emma Agneta Björgvinsdóttir

vona að það gangi betur næst

Emma Agneta Björgvinsdóttir, 11.8.2008 kl. 17:43

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hulda mín ég er sannfærð um það að allar heimsins orður blikna hjá því að vera Gulldrengurinn hennar móður sinnar.  Hvað er yndislegra en það ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.8.2008 kl. 11:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband