Stubbarnir, Tinky Winky og sonur minn
1.6.2007 | 21:12
Í Póllandi vilja þeir láta sálfræðing rannsaka kynhneigð Tinky Winky !!!!! Þar vilja þeir meina að samkynhneigð geti verið "smitandi" og börn sem horfa á Stubbana geti orðið fyrir áhrifum frá Tinky Winky að því að hann er alltaf með "veski" !!!! Hver segir að þetta sé "veski" er þetta ekki bar fín rauð "taska" sem hann á ?? veski = samkynhneigður
Sonur minn er fæddur árið 1996 og er því alin upp við að horfa á Stubbana. Hann er mikill "strákur" ef hægt er að segja svo um stráka, hann er alltaf í fótbolta, alltaf skítugur, mjög oft í rifnum buxum, kann að detta (þá á ég við að mörg börn í dag eru svo ofvernduð að þau slasa sig við minnsta fall) hann er líka óhræddur. En það er ekki allt, hann leikur sér jafnt við stelpur og finnst ekkert mál að fara í snú snú, fuglafit, teyjó eða fótbolta með þeim. Honum er lika alveg saman hvort þær eru frænkur hans eða ekki, jafngamlar honum eða 6. Hann á líka bleika peysu og finnst hann rosalega flottur í bleiku peysunni. Hann á reyndar ekki svona rautt veski eins og Tinky Winky !!!! Og honum finnst gott að knúsa.
Kannski eftir allt saman eru þetta áhrif frá þeirri tíð er hann horfði á Stubbana !!!!!! En er það ekki málið viljum við ekki að börnin okkar séu fordómalaus hvort sem liturinn er bleikur eða blár, strákur eða stelpa, samkynhneigður eða gagnkynhneigður, VESKI eða TASKA.................................
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 7.6.2007 kl. 22:07 | Facebook
Athugasemdir
Já engill - nú er ég þér hjartanlega sammála. Átti ekki orð þegar ég las greinina um þessa pólsku. Skilgreiningaáráttan er að verða öllu yfirsterkari finnst mér. Ekki má gera neitt nema skilgreina "þörfina", "nýtnina" og ekki síst "langtímaáhrifin" fyrst. Skil stundum ekki hvernig mannkynið hefur getað lifað og þróast allan þennan tíma hjálmlaus, engar olnboga- né hnjáhlífar að maður tali nú ekki um GÚMMÍ hellurnar sem allsstaðar þurfa að vera (í hlutlausum lit að sjálfsögðu svo ekki sé hægt að túlka það stráka- eða stelpu leikvöll).
knús til ykkar allra
Eygló Kr. (IP-tala skráð) 3.6.2007 kl. 14:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.