Rómantísk lautarferð !!!!!
17.8.2007 | 21:26
Við hjónin vorum á leið í stórafmæli til Bóbó bróðirs á Blönduósi (hvað eru mörg BÉ í því) á laugardag Veðrið var með eindæmum gott hægur andvari og um 18 stiga hiti Okkur fannst því alveg tilvalið að skella sér yfir Kjöl Bara dóla okkur í rólegheitum með fjallhringinn í kringum okkur og alveg einstakt útsýni já og jafnvel nesti og fara í smá lautarferð
Svo ég dreif í því að hita kaffi nesta okkur jú og smá mjólkurdreitil í þessum líka patent ferðaumbúðum Og svo var lagt í hann, Suðurlandið skartaði sínu fegursta á laugardag og við Reykholt í Bistkupstungum var 20 stiga hiti (þökk sé loftkælingunni í bílnum) fjallsýn með eindæmum Áfram héldum við í átt að Hveravöllum og þar skyldi nestað og notið blíðunnar.
Þegar við vorum komin áleiðis norður á bóginn fór að þykkna upp og útsýnið ekki alveg eins og við reiknuðum með. Er við komum svo á Hveravelli var komin norðan blástur 7 stiga hita og örlaði á regni Ekki fýsilegur kostur til að nesta svo við héldum leið okkar áfram og ákváðum að stöðva þegar hitastigið færi yfir 10 gráður
Upp við Blöndulón var hins vegar komin svarta þoka hitastigið enn 7 stig og ekkert sem togaði okkur út í móa að nesta
Rafvirkinn fékk þá snilldarhugmynd að við fengjum okkur bara smá kaffisopa í bílnum Það kostaði að ég þurfti að TORÐA mér afturí, eins liðug og nett ég er tókst það með ágætum að koma mér að kaffinu En ekki vildi betur til að þegar ég var á leið í framsætið að mér tókst að BRJÓTA arminn á milli framsæta
En kaffið var kærkomið eða þangað til að mjólkin kom út í það hún var SÚR
En við komumst klakklaust á Blöndós og vorum í góðu yfirlæti þar enda bróðir minn og mágkona yndisleg heim að sækja og eiga ekki í vandræðum þegar kemur að veisluhöldum
En heim fórum við eftir þjóðvegi 1 og til þess að vera örugg með notalega "lautarferð" var nestað í Hreðarvatnsskála
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:29 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.