Sumarbros til kvenna
20.6.2008 | 15:37
Þegar ég var yngri, vóg ég nokkrum kílóum minna. Ég þurfti aldrei að halda maganum inni þegar ég fór í þröngan kjól.
En nú, þegar ég er orðin eldri, hefur líkami minn brotist til frelsis. Og um þann hluta hans sem einu sinni var mitti, eru þægileg teygjanleg efni. Ítölsku skórnir þurfa að vera tveim númerum stærri en áður, ef ég kem þá fótunum yfirleitt í þá, og skrefbótin á sokkabuxunum sígur allt of oft niður undir hné. En ég hef einnig lært að það skiptir engu máli hvað gerist, eða hversu dimmt virðist yfir öllu í dag. Lífið heldur áfram og á morgun kemur betri dagur.
Ég hef lært, að það segir mikið til um manneskjuna hvernig hún bregst við þessum þremur hlutum 1. Rigningardegi 2. Týndum farangri 3. Flæktu jólatrésskrauti. Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar, komum við til með að sakna þeirra, þegar þau eru horfin á braut.
Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti, er ekki það sama og að skapa sér líf. Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri. Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með hornabolta-hanska á báðum höndum. Öðru hvoru verður maður líka að gefa boltann til baka. Ég hef lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég yfirleitt hitt á hina einu réttu ákvörðun. Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra. Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina. Allir þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar. Ég hef lært, að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt. Ég hef lært, að það sem þú segir og gerir vill gleymast, en fólk gleymir ekki hvernig þú lætur því líða.
Sendu þessa orðsendingu til frábærra kvenna í dag og eitthvað gott verður á vegi þínum... Þú hefur í það minnsta sagt öðrum konum að þér finnst þær frábærar, og kannski færðu þær til að brosa. En ef þú ekki gerir þetta... þá bilar rennilásinn og sokkabuxurnar rúlla niður á hæla, þangað sem ítölsku skórnir meiða þig...!
Góða helgi
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Guð minn góður! Fátt óttast ég meira en rúllandi sokkabuxur - nema ef vera skyldi flugur!!!
Soffía Valdimarsdóttir, 20.6.2008 kl. 15:47
Maður hreinlega tárast. Þessi jákvæðni sem þú býrð yfir er bara frábær. allt þetta sem um ræðir höfðar líka til okkar sem pissum standandi, nema kannski þetta með sokkabuxurnar. Karlar mega líka gráta.
Guðmundur Erlingsson (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 09:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.