Komin heim
5.8.2008 | 22:50
eftir frábæra ferð (sko loksins þegar við komumst) Það eru forréttindi að eiga vini í öðru landi sem taka á móti manni manni (og vinum manns) með galopnum örmum að annað eins þekkist varla.
Broshrukkurnar jukust um helming enda félagsskapurinn frábær en því miður gafst mér ekki tími til að kíkja á bloggvinkonu mína í klettunum hana Guðrúnu, en það verður næst, sorry Guðrún hefði svo gjarnan vilja taka í spaðann á þér en vegna þoku þá styttist ferð okkar um tvo daga
Eitt er alveg öruggt að í Færeyjum verður maður ekki svangur.........og ekki minnkaði súkkulaðirassinn !!!!
Búin að setja inn myndir, þær segja eflaust það sem segja þarf
En elsku vinir takk enn og aftur fyrir frábæra daga
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 6.8.2008 kl. 09:40 | Facebook
Athugasemdir
Allt sem þú segir er satt, gestrisnara fólk er ekki til en Færeyjingar.
Já það var leiðinlegt að hitta ekki á þig, en þú kemur væntanlega aftur, og þá fáum við okkur kaffi.
Gott að þú skemmtir þér dúllan min, okkur gengur bara betur næst að hittast.
Og já.. ég fyrirgef þér með glöðu geði, ég veit hvernig það er að ætla að gera allt, það er ekki hægt.
Knús úr klettunum.
Guðrún B. (IP-tala skráð) 5.8.2008 kl. 23:01
Nú, ég skal bara segja þér dæmi um almennilegheit, þegar við komum loks til Havnar var klukkan hálftvö um nóttina ég var í einhverju basli með að leggja bílnum, í stæðinu við hliðna var ungur strákur, tók eftir að ég var í basli og viti menn hann bara færði bílinn sinn
En takk við sjáumst vonandi næst
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 5.8.2008 kl. 23:14
Velkomin heim. Það er alltaf fúllt ef ferðirna styttast hjá manni sér í lagi stuttar ferðir með stífu prógrammi.
Knús úr sveitinni.
JEG, 6.8.2008 kl. 10:04
O já, takk sömuleiðis Hulda mín. Nú veit ég hvers vegna þér þykir svona vænt um Færeyjar - það er bara ekki hægt annað.
Soffía Valdimarsdóttir, 6.8.2008 kl. 11:45
velkominn heima skvís ferlega fúlt samt að ferðin skyli stitast svona
kv kristrún
Kristrún Heiða Þórarinsd Busk, 6.8.2008 kl. 18:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.