Ekkert skutl !

Gulldrengnum finnst voðalega gott að láta "skutla" sér, t.d. á æfingu og þó sérstaklega að láta skutlast eftir sér þegar æfingu er lokið.

Það er stundum gert W00t en ekki alltaf. Þar sem við erum staðsett í Verahvergi ofarlega í bænum er upp nokkra brekku að fara. Sú brekka er kölluð "gossabrekka" af innfæddum og getur hún reynst erfið í miklum mótvindi og svo ég tali nú ekki um gulldrenginn sem segist alveg uppgefin eftir hina og þessa æfinguna. Svo stundum lætur maður það eftir honum.

En um helgina þurfti hann að komast á körfuboltaæfingu og vildi ólmur láta "skutla" sér Shocking en við gáfum okkur hvergi og sögðum að honum væri engin greiði gerður með því. Skipti þá engum togum en drengurinn varð öskufúll og hreytti í okkur: SKO ÞEGAR ÞIÐ VERÐIÐ KOMIN Á ELLIHEIMILI OG ÞURFIÐ SKUTL ÞÁ ÆTLA ÉG EKKI AÐ SKUTLA YKKUR W00tW00tW00t og skellti á eftir sér útidyrunum !!!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Nei er þetta ekki vísir á að tímarnir breytast, ég man þegar ég var yngri (ekki fyrir alls löngu) og var neitað um "skutl" þá sagði ég alltaf: Ég ætla aldrei að neita mínum börnum um skutl !!!!!!!

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 8.1.2008 kl. 22:18

2 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Og hvenær farið þið á elliheimili ?

Halldór Sigurðsson, 8.1.2008 kl. 23:49

3 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Ég er þar á hverjum degi  ? með rafvirkjann

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 9.1.2008 kl. 16:06

4 identicon

Gelgjan eitthvað að segja til sín? Hmm mér er spurn

Bryndís R (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 18:08

5 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Það er spurning Bryndís hvort 12 ára gamli gulldrengurinn fá viðurnefnið "gelgjan" hér á blogginu !!!!!!

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 9.1.2008 kl. 20:01

6 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Veistu ..þetta get ég séð mjög nákvæmlega fyrir mér...

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.1.2008 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband