Búin að taka niður jólin

Fyrst var það jólatréð, það er nú reyndar svo að það sem rekur á eftir mér með það eru bæjarstarfsmenn sem koma og sækja tréð heim ef það stendur á lóðamörkum.

Jú jú ég hendi trénu þar, ásamt nokkrum greinum sem söguð höfðu verið af trénu Wink Svo í dag þegar ég kem heim úr vinnunni sé ég að tréð er farið en ekki greinarnar W00t

Nú nöldurskjóðann ÉG byrjaði náttúrlega að röfla í rafvirkja greyinu, þegar hann birtist úr vinnu, og býsnast heil ósköp yfir vinnubrögðum bæjarstarfsmanna (það er ekki í fyrsta skipti sem það er gert hér á bæ ! ég get til dæmis mokað götur bæjarins miklu betur og skipulegra en allir starfsmenn bæjarins) en eitthvað verður rafvirkinn skrýtin á svip Halo og segir já skrítið að þeir taki bara tréð en ekki greinarnar W00t

Svo segir hann: þegar ég fór í vinnuna í morgun voru einhver skrítin hljóð í vinnubílnum og ég sótti vinnufélagann og hann heyrði hljóðið líka. Svo urðum við að taka bensín (ekki ókeypis) og þá uppgötva þeir að jólatréð er fast utan á bílnum PinchPinchPinch

Hann var búin að keyra út um allan bæ með jólatréð í eftirdragi Tounge 

svo ef einhver bæjarstarfsmaður les þetta þá er jóltréð MITT á ENN EINU (N1) planinu Sideways


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahahaha þetta hefði ég viljað sjá

Bryndís R (IP-tala skráð) 11.1.2008 kl. 07:13

2 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

 æ en skemmtilega krúttlegt...maðurinn þinn er bara fyndinn..alltaf!!!

Knús yfir heiðar!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 12.1.2008 kl. 22:57

3 Smámynd: Kittý Sveins

vá ligg hérna í hláturskasti.. hefði viljað borga fyrir að sjá þetta!!!!!!

Kittý Sveins, 14.1.2008 kl. 15:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband