CP hátíð

Í gær brugðum við okkur upp í Reykholt í Biskupstungum á CP hátið í boði systur minnar og fjölskyldu, þetta er í annað skiptið sem við förum og skemmtum okkur konunglega, þar er maður umkringdur gullmolum.

Fyrir ykkur sem vitið ekki hvað CP stendur fyrir læt ég þetta fylgja

CP börn eru börn sem greinast með fötlun sem koma fram á fyrstu æviárum og einkennast að afbrigðilegum og seinkuðum hreyfiþroska. CP er afleiðing skaða eða áfalls á stjórnstöðum hreyfinga í heila, sem verða áður en hann nær fullum þroska. Skemmdirnar torvelda stjórnun hreyfinga og beitingu líkamans. Þær eru óafturkræfar og aukast ekki með tímanum. Fötlunin er margbreytileg og einkennin mismunandi. Sumir með CP hreyfa sig og þroskast næstum eðlilega á meðan aðrir þarfnast aðstoðar við allar daglegar þarfir. (vitnað í cp.is)

Hér er flottasti frændinn, systir hans og gulldrengurinn (með glóðurauga sem ekki má tala um)

Og frábært skemmtiatriði með Bahamagenginu HeartSmileHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Það er svo frábært hvað svona hátíðir gera fyrir þessi börn.  Því þau eiga jú ekki sama val og önnur.  Knús og klemm úr sveitinni.

JEG, 6.7.2008 kl. 12:31

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gaman að þessu Hulda mín.  Knús á þig, gulldrenginn og öll börnin með Cp

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.7.2008 kl. 20:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband