Jónsmessan
21.6.2007 | 10:05
Í kvöld ætlum við nokkrar sætar og sexý konur að taka okkur saman og fara í gönguferð. Hún hefst í Hveragerði um kl. 20.00 þar sem rafvirkinn ætlar að aka þessum föngulega hóp upp að Ölkelduháls. Þaðan er ferð okkar heitið niður Klambragil í Reykjadalinn þar sem þessi sjón blasir eflaust við okkur
fótabað í heita læknum kakó á brúsa velta okkur upp úr dögginni haldið heim á leið niður Rjúpnabrekkur
Þetta er "Esjan" okkar eftir vinnu !!!!!!
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Verða ekki örugglega myndir hér á morgun af þessari skemmtilegu ferð..myndir af krumpaðri dögg eftir veltandi kjarnakonur???
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.6.2007 kl. 12:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.