Nýyrði
4.8.2007 | 10:14
Ég sé að bloggarar á moggabloggi eru duglegir að finna nýyrði á okkar ástkæra ylhýra tungumáli. Þetta voru ég og SLEMBRA vinkona mín einmitt að ræða um daginn.
Orðin sem okkur finnast ekki mjög falleg á íslensku eru geisladiskur og dvd diskur. Ég fór að segja henni hvaða orð frændur okkar Færeyingar nota. Orðið "flöga" (borið fram flöva) sem segir að hluturinn sé fisléttur.
Þá komu þessi snilldarorð hjá okkur "TÓNFLUGA" OG "MYNDFLUGA" hljóma betur og eru mun fallegri í framburði en geisladiskur.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.