Hönnun og snið er ekki það sama
8.8.2007 | 18:20
Ég er aðdáandi íslenskrar hönnunar og sér í lagi allt sem er úr ull og fatnaði en hún er oft svo dýr að fyrir meðalmanneskju eins og mig er það bara ekki í boði fyrir pyngjuna. En ég var svo heppin fyrir nokkrum árum að eignast færeyska hönnun sem er alveg jafnklassískt og sú íslenska alveg frábær ullarpeysa eftir konu sem heitir Sirri.
Þeir sem mig þekkja vita að fötin mín eru yfirleitt þeim eiginleikum gædd að vera þægileg og ég elska náttföt
Um daginn fór ég svo í búð í Reykjavík sem selur náttföt eftir íslenskan hönnuð ummm og þau voru á útsölu Svo ég var ekkert að drolla við þetta og keypti mér þessu fínu náttföt án þess að máta Bíddu hver mátar náttföt
Ég hefði betur mátað þau Sniðið er bara ekki að gera sig fyrir það fyrsta þá ná buxurnar alveg upp að brjóstum og ekki er gert ráð fyrir að ég sé með rass hlýrabolurinn sem er í stíl er ekki skömminni skárri Hlýrarnir eru svo langir að þegar ég er komin í bolinn koma brjóstin á mér upp úr honum og ég sem státa nú ekki af stórum brjóstum
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 9.8.2007 kl. 09:39 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.