Áttavillti unglingurinn
16.9.2007 | 11:31
Unglingurinn á heimilinu er búin að bæta við sig auka aukavinnu ( skólinn + fylla á Bónus) við að keyra út pizzur hér í bæ. Ætti ekkert að vera svo flókið nema að hann er svo ÁTTAVILLTUR að þetta kostar hann nokkur símtöl í foreldrana á meðan útkeyrslu stendur hvar er Birkimörk og hvar er Brúarhvammur .....
Nema í gærkvöldi þá hringir hann móður og másandi: sko ég er komin langleiðina niður á Læk og er að leita að Kröggólfstöðum en bara finn þá ekki
Ekki nema von elsku kallin minn Lækur er langleiðina niðrí Þorlákshöfn en Kröggólfstaðir eru hérna rétt fyrir neðan hringtorg
Svo ef þið hafði fengið pizzuna ykkar seint í gærkvöldi er um að gera að setja sig í samband við ÁTTAVILLTA UNGLINGINN
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Láta hann fá GPS ,landakort og gerfihnattasíma
Halldór Sigurðsson, 16.9.2007 kl. 22:50
Svo er í Hjálparsveitinni í þokkabót !!!!!!!
Ekki nema von að hann hafi verið látin leika týnda rjúpnaskyttu hérna um árið
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 16.9.2007 kl. 23:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.