Áttavillti unglingurinn

Unglingurinn Cool á heimilinu er búin að bæta við sig auka aukavinnu ( skólinn + fylla á Bónus) við að keyra út pizzur hér í bæ. Ætti ekkert að vera svo flókið nema að hann er svo ÁTTAVILLTUR að þetta kostar hann nokkur símtöl í foreldrana á meðan útkeyrslu stendur Blush hvar er Birkimörk og hvar er Brúarhvammur .....Woundering

Nema í gærkvöldi þá hringir hann móður og másandi: sko ég er komin langleiðina niður á Læk og er að leita að Kröggólfstöðum en bara finn þá ekki Errm

Ekki nema von elsku kallin minn Lækur er langleiðina niðrí Þorlákshöfn en Kröggólfstaðir eru hérna rétt fyrir neðan hringtorg Pinch

Svo ef þið hafði fengið pizzuna ykkar seint í gærkvöldi er um að gera að setja sig í samband við ÁTTAVILLTA UNGLINGINN Shocking

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Láta hann fá GPS ,landakort og gerfihnattasíma

Halldór Sigurðsson, 16.9.2007 kl. 22:50

2 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Svo er í Hjálparsveitinni í þokkabót !!!!!!!

Ekki nema von að hann hafi verið látin leika týnda rjúpnaskyttu hérna um árið

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 16.9.2007 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband