Góður dagur
1.3.2008 | 15:35
og fallegur með eindæmun. Hamarinn skartar sínu fegursta í snjónum og veðurblíðunni.
Ég er ein heima Rafvirkinn fór með gulldrenginn og bestu vini hans í keilu og pizzu í bæinn í tilefni af morgundeginum Ég hef nýtt tímann að undarbúa morgundaginn klára verkefni og lesa svolítið í þroskasálfræðinni En það er mesti friðurinn þegar maður er einn heima en sem betur fer verð ég ekki ein lengi
Því í kvöld ætlum við að borða með slembru og fjölskyldu aðallega til að funda um Færeyjarferðina í sumar Held að þetta verði svolítið RAUÐUR fundur Og á morgun er það svo afmælisveisla
En njótiði Hamarsins með mér
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Flott mynd. Og gott að vera ein heima í friði og ró. Njóttu þín Hulda mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.3.2008 kl. 16:18
hæ elsku sætust,
hér er allt á kafi í snjó. Fékkstu ekki póstinn frá mér? þú kannski fattaðir ekki að þú áttir að copya og pasta í url gluggann....hahhahah...hljómar eins og spænska.
falleg er myndin af hamrinum, er þetta tekið fyrir utan gamla heimilið mitt?
Dagný (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 21:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.