Sjálfsvorkunnarblogg
20.3.2008 | 10:00
ég er nú ekki kirkjurækin kona, en er Guðslifandi fegin fyrir að fá páskafrí, kærkomið frí er orðin langþreytt á þessum vetri og erlinum sem hefur fylgt honum.
Ekki það að ég sofi fram eftir öllu, heldur að losna við að rífa sig upp á morgnanna og haska sér í vinnu, þá er það yndislegt að geta hellt sér upp á kaffi og verið í rólegheitum svona fram að hádeigi.
Fórum á Hótel Örk í gærkvöldi þar sem að Pabbinn var sýndur, ég hló út í eitt svo ég tali nú ekki um krónískan hissasvip á feðrum ofl. þið sem eigið börn eða ætlið ykkur að eignast börn bara verðið að sjá þessa sýningu Sáum eiginlega mest eftir því að hafa ekki tekið klaufdýrið og gulldrenginn með.
En skátarnir búnir að koma með páskaliljurnar, búið að týna upp ungana, vonandi eigið þið gott frí um páskana og njótið þess að vera með fjölskyldunni, það ætla ég að gera og svona eina skýrslu í þroskasálfræði svo ég haldi dampi
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Ég get ekki lesið neina sjálfsvorkunn út úr þessu bloggi Hulda mín. Þar skín frekar gleði og ánægja ef þú spyrð mig.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.3.2008 kl. 10:14
Njóttu bara vel morgunsopans Hulda mín..þú átt hann svo sannarlega skilinn.
Leitt að þurfa að drösla þér á fætur á mánudaginn til að setja saman kransakökuna dúllan mín...heyrumst síðar í dag.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 21.3.2008 kl. 11:28
Hafið það sem allra best um páskana!
*KNÚS*
Vilborg, 21.3.2008 kl. 14:53
Gleðilega Páska
kveðja úr Mosfellsbænum
Dísa frænka (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 18:48
Takk, stelpur mínar og gleðilega páska
Og Katrín ég hlakka til að setja saman kransaköku og njóta dagsins með ykkur
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 21.3.2008 kl. 20:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.