25 vísbendingar
19.4.2008 | 16:23
um að þú sért að verða gamall/gömul (sérstaklega fyrir þá sem fögnuðu fertugsafmæli í síðustu viku)
Þú ert sofandi en allir halda að þú sért dáinn.
Þú ert með partí og nágrannarnir verða þess ekki varir.
Þú getur verið án kynlífs en ekki án gleraugna.
Þú ferð oftar í bakinu en þú ferð út.
Þú ert hættur að draga inn magann sama hver kemur inn.
Þú kaupir áttavita í bílinn.
Þú ert stoltur eigandi sláttuvélar.
Besti vinnur þinn er með stúlku sem er helmingi yngri Og er ekki að brjóta nein lög.
Handleggirnir á þér eru of litlir til að fletta blaðinu.
Þú syngur með laginu í lyftunni.
Þú vilt frekar fara í vinnu en að vera heima lasinn.
Þér finnst gaman að hlusta á aðra tala um spítaladvöl.
Þér finnst kaffi Vera besti drykkur í heimi.
Fólk hringir í þig kl. 9 og spyr var ég að vekja þig ?
Þú svarar spurningu svona: Vegna þess að ég sagði það!
Endinn á bindinu hjá þér kemur hvergi nálægt buxnaröndinni.
Þú ferð með málmleitartæki á ströndina.
Þú ert í svörtum sokkum þegar þú ert í sandölum.
Þú manst ekki eftir því hvenær þú lást á gólfinu til að horfa á sjónvarpið.
Þú ert með meira hár í eyrunum en á höfðinu.
Þú talar um gott Gras en þú ert að tala um blettinn hjá nágrannanum.
Þú verður vondur þegar talað er um ellilífeyrinn.
Þú fékkst þér gervihnattadisk til að sjá veðurstöðina.
Þú getur farið í keilu án þess að drekka.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Skrambi eldist maður hratt.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó, Hulda mín gamli sveitungi minn.
Karl Tómasson, 19.4.2008 kl. 20:58
Æ, æ þetta kemur nú aðeins við mann
Soffía Valdimarsdóttir, 20.4.2008 kl. 10:24
Hahahaha
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.4.2008 kl. 14:45
'otrúlegt hve tíminn líður hratt....já ekki fleiri orð um það ......
Ásta Lóa (IP-tala skráð) 20.4.2008 kl. 23:27
Þetta er snilld!
Heimir Eyvindarson, 21.4.2008 kl. 00:49
Úff verð að fara að hugsa minn gang, óeðlilega mikið sem passar við mig, ekki nema 23ggja ára stelpan!!
Ylfa Lind Gylfadóttir, 22.4.2008 kl. 15:19
Vá hvað ég kannast við mikið af þessu úff verð að breytast og það strax
Sæmi (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.