Áttu einkaþotu??
2.9.2008 | 18:33
eins og þessa, nú eða bara einhvernvegin öðruvísi ekki aðalatriðið hvernig hún lítur út
ef ekki áttu þá flugmiða til Færeyja á föstudaginn sem þú vilt losna við??
Þarf bráðnauðsynlega að komast þangað um helgina þar sem mín kæra vinkona er fertug og það er ekkert laust flug á föstudaginn, búin að reyna hinar ýmsu leiðir, ja nema þessa með einkaþotuna nú kannski er einhver góðviljaður á leið til London eða Köben á föstudag eða laugardagsmorgun og vill hafa skemmtilegan farþega sem fer bara út í Færeyjum
Nú annars ef þið þurfið að ná í mig þá er ég mjög upptekin, nema þið hafði far fyrir mig, við að biðja og síkreta þessa ferð til mín
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Þar sem ég er nú ekki mikið á ferðinn og síst til Færeyja þá get ég ekki hjálpað en sendi þér knús og klemm úr sveitinni.
JEG, 3.9.2008 kl. 10:40
Búin að Secreta þetta, þú pantar flug til köben og þaðan hingað. Hangtu svo á sölufulltrúanum hjá Flugfélaginu og fáðu að vera á vængnum. Kraftgalli er allt sem þarf. Vertu jákvæð, það virkar.
Knús.
Guðrún B. (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 14:48
Jú Guðrún ég var búin að tékka á því kæmist á föstudagsmorguninn frá Keflavík og um kvöldið frá Kaupmannahöfn fyrir aðeins 83.000 kr. aðra leið
En mér líst vel á þetta með kraftgallann
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 3.9.2008 kl. 16:39
Hva.. þú bara sleppir pakka .. setur bara slaufu í hárið og segir .. ég er pakkinn.
Áttu ekki punkta ? þú kemst heim á þriðjudaginn aftur beint er það ekki ?
Guðrún B. (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 17:59
Um leið og ég eignast einkaþotu skal ég sjá til þess að þér verði skutlað til Færeyja. Bara því miður hræddur um að þá verði vinkona þín gott betur en miðaldra!
Sigurður Hreiðar, 3.9.2008 kl. 21:23
var nú eiginlega meira að vonast eftir því að Björgúlfur Thor eða Jón Ásgeir myndu lesa bloggið mitt
en pakkin er farin, surpræsið varð eftir !!!! eða....................
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 3.9.2008 kl. 23:11
Ef ég ætti einkaþotu hefði ég nú bara flogið með þig til Færeyja og beðið eftir þér á vellinum meðan þú skemmtir þér og kæmi þér heim aftur. Ennnnn... afþví Jón Ásgeir eða Björgúlfur lásu ekki bloggið þitt, þá bara verður þú að fara í afmæli einhvað annað. Ég á til að mynda afmæli í dag, kannski fimm árum eldri en vinkonan. En þú mátt alveg koma í kaffi og snatt ég er sko meira en tíl í það.... Þú þarft enga flugvél í það. getur bara keyrt báðar leiðir
kveðja Ásta Lóa
Ásta Lóa (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 23:36
Ég myndi lána þér vængi en ég er bara að nota þá tíhíhíh.
Vinkonan veit að þú ert hjá henni í hjarta, opnaðu nú rauðvínsflösku helltu í glas og skálaðu fyrir henni....og ég skal skála fyrir þér í te!
Jeg savner dig
kveðja
Dagný
Álný (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 19:02
Vonandi hefurðu komist til Færeyja Hulda mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.9.2008 kl. 09:49
Hvernig er það Hulda mín, ertu á Íslandi eða ertu í Klettaborginni minni ??
Guðrún B. (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 00:42
http://www.new.facebook.com/group.php?gid=25249567490&sid=499b6e809681fa1a8c40e60f4f01d467&refurl=http%3A%2F%2Fwww.new.facebook.com%2Fs.php%3Fk%3D200000010%26c1%3D10%26c2%3D138%26sid%3D499b6e809681fa1a8c40e60f4f01d467
Guðrún B. (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 12:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.