Nýtt, námskeið á Bifröst fyrir karlmenn

Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:

HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT ?
Skref fyrir skref með glærusýningu.

KLÓSETTRÚLLUR: VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM? Hringborðsumræður.

MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel).

DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?
Pallborðsumræður; nokkrir sérfræðingar.

LÆRA AÐ FINNA HLUTI
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi -
Opin umræða.

TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?
Hópvinna og hlutverkaleikir.

HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM
PowerPoint kynning.

SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar.

ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?
Ökuhermir.

AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA
Fyrirlestur og hlutverkaleikir.

HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni.

AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR
Komdu með dagatalið þitt í tímann.

AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR
Einstaklingsráðgjöf og samtöl.



Skráning er hafin í s. 666-9999.
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Þetta "námskeið" fyrir karlmenn er búið að hringsóla í mínum vinkvennahóp sl. 2 -3 ár, en mér finnst það alltaf jafn óborganlega fyndið og er því alls ekki að kvarta yfir að sjá það hér -nema síður sé !

Þetta er eins og að rekast á gamlan vin, sem fær mann alltaf til að brosa út í annað, ef ekki bæði... 

Ætti að hanga á ísskápshurðinni hjá hverri einustu konu sem hefur karlmann(menn) í heimili. 

Hildur Helga Sigurðardóttir, 12.9.2008 kl. 17:12

2 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Með góða kerlingu á heimilinu er þetta nú ekki vandamál. 

Högni Jóhann Sigurjónsson, 12.9.2008 kl. 21:29

3 Smámynd: JEG

Já þessi námskeið eru sígild það er á hreinu.

Knús úr sveitinni.

JEG, 12.9.2008 kl. 23:57

4 identicon

Hmmmm það er nú eiginlega við þetta námskeið að mér veitti ekki af að fá smá ráðgjöf með suma hluti. Td þetta með diska og hnífapör sem ekki fara sjálf í uppþvottavélina Ég r alltaf að klikka á þessu atriði.

Lísa Margrét Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 19:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband