Ég er bara góður í dag
14.11.2008 | 17:06
Jú það er kreppa og hún hefur ekkert farið fram hjá okkur hér í Klettahlíðinni.
Hér á heimilinu eru tveir iðnaðarmenn rafvirkinn og wanna be rafvirki = klaufdýrið, rafvirkinn er orðin ríkisstarfsmaður, jú í haust þáði hann vinnu hjá RARIK (langaði að breyta, hjúkk) klaufdýrinu (sem er með eindæmum duglegur og úrræðagóður) var sagt upp sinni vinnu.
Hann fór vestur á Reykhóla í morgun og ætlar að halda áfram að læra að leggja rafmagn, samdi við kennarann sinn í kvöldskóla FB, sem leist svo vel á sjálfsbjargarviðleitnina í drengnum sagði honum að drífa sig vestur, passa sig að mæta prófinn.
Ég er svo heppin að vera á Elló, fólk hættir nefnilega ekkert að verða gamalt þó að það sé kreppa.
Gulldrengurinn, sem ég fer nú að kalla blaðamanninn því nánast í hverri viku er hann á síðum sunnlenskra blaða, er með nýjan frasa í kreppunni : Ég er bara góður í dag.
Held að við ættum að fara inn í helgina með frasann hans.
Eða ertu ekki annars bara góður í dag????
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:43 | Facebook
Athugasemdir
Knús á helgina þína og jú við erum bara nokkuð góð hér í Hrútósveitó.
JEG, 14.11.2008 kl. 18:54
Þetta er bara góður frasi hann er ekki bara fyrir helgina heldur hvern dag. Tek þennan með inn í daginn .... ég er bara góð í dag
Ásta Lóa (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 00:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.