Yndislegt líf

Gulldrengurinn var að fara á litlu jólin hjá yngsta stigi nú í morgun og ætlaði að leika Sekkjastaur, ég sem er í sumarfríi í dag fór náttúrlega að spyrja hann svona jólasveinaspurningar eins og hvar eigið þið heima osv. hann verður nú ekki í vandræðum með það eftir svörin sem ég fékk.

Þegar ég spurði hann í hvaða fjalli þeir ættu heima sagði hann: hvað heldur þú að ég muni það ég sem er sjöhundruð og eitthvað ára gamall Wink

En hljóp út með myndavélina áðan það er svo jólalegt hérna hjá okkur

Á sunnudaginn hittum við góða og gamla vini í aðventubröns og við eigum fallegustu og yndislegustu börn á Íslandi, þau hafa ekki hist oft en voru ekki í vandræðum með það eins og sjá má

og svei mér ef við eigum bara ekki myndarlegustu kallana líka

En dagarnir líða hratt þegar mikið er að gera og það á við um mína vinnu, á svo stóru heimili sem Ásbyrgi er, er í mörg horn að líta fyrir jólin en við gleymum ekki að skemmta okkur og í vikunni var haldið harmónikkuball sem tókst með eindæmum vel

Veit að lífið er ekki alltaf auðvelt en við megum ekki gleyma að brosa, gleðjast og skemmta okkur Heart 

Þar sem ég var í fertugsafmæli á laugardagskvöldið síðasta þar sem Baggalútur heillaði alla læt ég grátbroslegan húmor þeirra drengja fylgja með

 

ÞAÐ KOMA VONANDI JÓL
Allflestar útgönguspár
eru á eina lund;
þetta var skelfilegt ár.
Hér út við heimskautsins baug
hnípin þjóð – þráðbeint á höfuðið flaug.
Allt þetta útrásarpakk
át á sig gat
svo loftbólan sprakk.
Nú eru lífskjörin skert, mannorðið svert,
Hvað hafið þið gert?
Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við skellum könnu upp á stól
og Sollu í kjól.
Þrátt fyrir allt
þrátt fyrir verðbólguskot
– þjóðargjaldþrot.
Við áttum íbúð og bens
og orlofshús.
Allt meikaði sens.
Góðgerðir gáfum og blóð
greiddum í – dulítinn séreignasjóð.
En nú er allt þetta breytt og eftir er
nákvæmlega ekki neitt.
Já nú er útlitið dökkt
ljósið er slökkt
og við erum fökkt.
Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Þó vanti möndlu í graut
og amerískt skraut.
Þrátt fyrir allt
þrátt fyrir háðung og smán
– myntkörfulán.
Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við étum á okkur gat
af innlendan mat.
Og þrátt fyrir allt
misnotum sykur og salt.
Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við krössum afmælið hans
– heimslausnarans.
Því að þrátt fyrir allt
drekkum við mysu í malt.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Já hann er nú vanalega ekki í vandræðum með tilsvörin drengurinn sá!

Soffía Valdimarsdóttir, 18.12.2008 kl. 11:01

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehehe gott hjá honum.  Auðvitað eigið þið flottustu karlana Hulda mín.  Og takk fyrir myndirnar, gaman að skoða þær.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.12.2008 kl. 22:53

3 Smámynd: JEG

Baggalútur er bara snilld   enda er maður búinn að nauðga þessu lagi dáldið í spilaranum .....ég sem spila aldrei tónlist   en þetta bara kleip mig og ég greip það glóðbolgt.  Knús og klemm á þig mín kæra. 

JEG, 19.12.2008 kl. 22:31

4 Smámynd: Karl Tómasson

Gleðileg jól kæra Hulda og takk fyrir skemmtilega bloggvináttu.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 23.12.2008 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband