Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
Prjóni prjón í stað bloggs
28.4.2009 | 20:33
Já nú er ég gjörsamlega dottin í það aftur og það sést nú best á því sem ég prjóna
eða næstum því
svo er komið sumar
allavegana inni
Veit ekki hvað ég verð dugleg að blogga á næstunni ég skal lofa ég er ekki hætt að prjóna
Gleðilegan kosningadag
25.4.2009 | 12:13
Já mikil hátíð lýðræðis í dag, við megum kjósa.
Veit að ekki þarf að hvetja bloggara til að kjósa en þarna úti er fullt af ungu fólki sem sér ekki ástæðu til þess að nýta kosningaréttinn sinn. Er kannski of ungt til þess að skilja lýðræðið.
En í dag eru átta möguleikar í boði það hlýtur að vera einn sem hentar þér
Njótiði dagsins og virðum skoðun hvers annars
Kjörfundur hafinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pólitíkusar eru allstaðar eins
16.4.2009 | 18:46
Fagurgalahjal í hverju horni
7.4.2009 | 20:12
Nú er kosningabaráttan hafin og allir keppast um eitthvað fagurgalahjal enn eina ferðina.
Enn eina ferðina á að bjóða okkur upp á sömu helvítis fokking loforðin, sem fyrnast á kosninganótt, almenningur ÆTLAR að glepja við þessu eina ferðina enn.
HVAÐ ER AÐ OKKUR almenningur búin að heimta breytingar, en erum ekki nokkru skárri en frambjóðendur, trúum þessu einu sinni enn.........
Eina vitið sem ég hef séð fram þessu er Borgarahreyfingin afskaplega einfalt við stöndum frammi fyrir vandamáli, það bera að leysa með því að snúa bökum saman ?????
Hef kosið ýmislegt um ævina allt frá Flokki Mannsins til Sjálfstæðisflokks allt þar á milli, já já hlægið þið bara ég hef nefnilega staðið í þeirri trú að atkvæði mitt skipti svo miklu máli !!!!
Það sem að alþingi átti að gera strax í haust var að snúa bökum saman og leysa vandamálin, en NEI þar er engin heilbrigð skynsemi, menn endalaust að ota sínum tota og hafa mestar áhyggjur af hver ráði.
Get ekki séð að þetta sé að breytast þrátt fyrir kosningar mitt atkvæði verður að öllum líkindum AUTT