Heimspeki Charles Schultz

             
Charles Schultz er höfundur teiknimynda syrpunnar Peanuts. Þú þarft ekki að svara spurningunum.
 Lestu verkefnið og þér mun verða þetta ljóst:
 
1. Nefndu fimm auðugustu einstaklingana í heiminum.
2. Nefndu fimm síðustu sigurvegara í fegurðarsamkeppni Evrópu.
3. Nefndu tíu einstaklinga, sem hafa unnið Nobels verðlaunin.
4. Nefndu sex leikara og leikkonur, sem unnu Óskars verðlaunin á  síðasta ári.
 
Hvernig gekk þér?
 
Niðurstaðan er, að enginn okkar man fyrirsagnir gærdagsins. Þetta eru ekki  annars flokks afreksmenn. Þeir eru þeir bestu á sínu sviði.En klappið deyr út.Verðlaunin missa ljómann. Afrekin eru gleymd. Viðurkenningarnar og 
skírteinin eru grafin með eigendum sínum.

Hér eru nokkrar aðrar spurningar. Sjáðu hvernig þér gengur með þær:
 
1. Skrifaðu nöfnin á fimm kennurum sem hjálpuðu þér á þinni skólagöngu.
2. Nefndu þrjá vini, sem hafa hjálpað þér á erfiðum stundum.
3. Nefndu fimm einstaklinga, sem hafa kennt þér eitthvað mikilvægt.
4. Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem kunnu að meta þig að verðleikum.
5. Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem þér þykir gott að umgangast.
 
Auðveldara?
 
Lexían: Fólkið sem skiptir þig mestu máli í lífinu eru ekki þeir, sem hafa bestu meðmælabréfin, mestu peningana eða flestu verðlaunin.
 Heldur þeir, sem finnst þú skipta mestu máli.
 
Sendu þetta áfram til þeirra einstaklinga, sem hafa haft jákvæð áhrif á líf þitt.

 Hafðu ekki áhyggjur af því, að heimurinn sé að farast í dag. Það er nú þegar morgun í Ástralíu. (Charles Schultz)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Hmmm -- doltið gott. Ég komst í eina sex nóbelshöfunda, en það kostaði talsverða upprifjun.

Vissi ekki einu sinni að það væri haldin fegurðarsamkeppni Evrópu…

Í síðara tilvikinu voru tölurnar fimm og þrír alltof takmarkandi.

Kveðja

Sigurður Hreiðar, 2.10.2007 kl. 21:40

2 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Sammála, em ég tel þig bara and.... góðan að hafa komist upp í sex

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 2.10.2007 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband