Eiginleikar lífsins

eru þrenns konar:

það sem er auðvelt, erfitt eða ómögulegt.

Þeir sem velja auðveldustu leiðirnar lifa öruggu og leiðingjörnu lífi.

Þeir sem taka á sig áhættur í lífinu, eru ósmeykir og harðir af sér og fá að njóta lífsins.

Þeir sem framkvæma hið óyfirstíganlega falla aldrei úr manna minni.

Hvaða eiginleika lífsins hefur þú valið þér?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Líklega engan af þessum. Er það í boði?

Heimir Eyvindarson, 1.5.2008 kl. 16:44

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er ekki nokkur spurning í mínum huga ERFITT, og þannig er það bara, sé ekki eftir neinu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.5.2008 kl. 16:54

3 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Akkúart í augnablikinu bara allt þetta og mikið af því! - Vil láta brenna mig og dreifa öskunni í kyrrþey yfir Blómstrandi daga. Þú klikkar ekki á því Hulda - ég treysti þér!

Soffía Valdimarsdóttir, 1.5.2008 kl. 17:45

4 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Er lífið alltaf svona einfalt?

Mér finnst gaman að hafa nægan tíma, ganga um í náttúrunni, kannski skíða, kannski uppgötva eg e-ð forvitnilegt og skemmtilegt sem eg hefi ekki séð áður: sjaldgæfan fugl, kannski ref í íslenskri náttúru sem er mjög sjaldgæft því þeir hafa svipaðan smekk og viðmannfólkið að finnast lambakjöt gott. Því eru þeir hundeltir og drepnir.

Að liggja upp í loft og horfa á skýin, finna goluna leika um náttúruna, ilminn af jurtum eða kannski dýrum, - þá er kannskiönnur lykt en ilmur... Það er svo margt skemmtilegt.

Þetta er létt fyrir suma, erfitt fyrir aðra, jafnvel mjög framandi fyrir þá sem eiga e.t.v. meira en nóg af öllu en eyða öllum sínum frístundum að eltast við e-ð sem er kannski horfið á morgun.

Fyrirgefðu boðflennuskapinn. Gangi þér vel í þínum praxís! 

Mosi 

Guðjón Sigþór Jensson, 1.5.2008 kl. 18:58

5 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ég gæti ekki hugsað mér að fara auðveldu leiðina, ég þekki nokkra þar - þau eru leiðinleg.

Guðjón orðar þetta mjög vel.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 1.5.2008 kl. 21:39

6 Smámynd: Kristrún Heiða Þórarinsd Busk

hugsa að maður velji sér svona sitt lítið a hverju af þessu öllusaman svona einhvertíman um lífs leiðinna en spurning hvort það er á réttum stöðum ;)

Kristrún Heiða Þórarinsd Busk, 1.5.2008 kl. 22:22

7 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Nei ætli lífið sé ekki aðeins flóknara, en þetta getur verið vegurinn að því sitt lítið af hverju og helst svolítið TÖFF á köflum.

Ég á enga uppskrift, enda er ég fræg fyrir allt annað en auðveldu leiðina, ég elska lífið eins og það kemur fyrir á hverjum degi og alla sem eru í kringum mig óháð því hvaða leið þeir fara

Nú fer ég að vera eins og Elli áttavillti....þú vilt ganga þinn veg ég vil ganga minn veg og svo mætumst við á miðri leið....ég vil gera hinsegin þú vilt gera svona...svo verðum við að bíða og vona

 en að velja auðveldu leiðina

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 1.5.2008 kl. 22:32

8 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Og Guðjón tel þig nú ekki vera boðflennu hér á minni síðu, ég held að þú hafir unnið með honum karli föður mínum á Esso í Mosó hér á árum áður.

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 1.5.2008 kl. 22:38

9 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Jú það stendur heima. Þeir voru tveir nafnarnir, annar að eg held faðir þinn sem var mjög lengi búsettur í Mosfellsbæ og fékkst við sitt hvað merkilegt á sinni ævi. Hinn var Akureyringur og skáldmæltur enda kominn af skáldi ágætu. Eitt sinn orkti hann nokkrar vísur að gamni sínu um okkur á þessari bensínstöð. Eitthvað fannst Ómari Runólfssyni á Laugarbóli í Mosfellsdal Baldursson halla réttu máli og orkti aðra vísu og snéri meiningunni þar með við.

Annars var margt sem gerðist þarna á bensínstöðinni en því fer fjarri að persónurnar sem lýst er í þeirri frægu Næturvakt sem slóg í gegn hafi átt sínar fyrirmyndir þarna. Þeirra ber að leita eitthvað annað. Áhersla var lögð á þessari bensínafgreiðslu að sýna viðskiptavinum eins mikla lipurð og þjónustulund og átti faðir þinn sinn þátt í að svo væri. En hann vildi hafa hlutina alla í góðu lagi og var því öðrum ágæt fyrirmynd.

Bestu kveðjur

Mosi - (GJ)

Guðjón Sigþór Jensson, 5.5.2008 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband