Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Samkvæmisleikir

Nú leita ég á náðir ykkar og langar að vita hvort þið kunnið ekki einhverja stórskemmtilega samkvæmisleiki mig vantar svo hugmyndir fyrir.............

Bið ykkur endilega að setja inn frábærar hugmyndir

Kv Hulda hugmyndasnauða


Moggin ekki kominn

inn um lúguna í dag svo þá er bara að setjast við tölvuna með kaffibollan.

Mér hefur nú svo sem ekkert leiðst þessa vikuna og lítið verið að stelast í tímaþjófinn (tölvuna) en vikan fór í að slá endahnútinn á Skotlandsferðina og það verður svo gaman. Get víst lítið meira sagt ef að samstarfsfólk mitt rambar hér inn.

En Gulldrengurinn minn sem er 11 ára hefur fram að þessu laumað sér á næturna í ból foreldrana þetta hefur svo sem ekki verið vandamál en nú er svo komið að drengurinn er alltaf að stækka (jú það er það sem börn gera) og tekur hann pláss eins og hver annar fullorðin einstaklingur. Rúmið okkar er bara gert fyrir tvo fullorðna og þegar sá þriðji bætist við þá er ekkert val ÞÚ BARA LIGGUR Á ÞESSARI HLIÐ.

Það hefur yfirleitt gengið, að þegar verulega er farið að þrengja að okkur að biðja hann um að færa sig í sitt rúm. 

En í vikunni gekk mér ekkert að fá hann til að færa sig svo úr varð að ég fór í stofusófann !!!

Þegar ég svo vakti hann um morgunin og sagði við hann að þetta gengi nú ekki svona ég hefði þurft að ganga úr rúmi fyrir hann og sofa í sófanum. Þá var hann ekki lengi að svara og  sagði:

VAR ÞAÐ EKKI BARA NOTALEGT !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! 


Einlæg skilaboð

My Comfort Zone 

I use to have a Comfort Zone
Where I knew I couldn't fail
The same four walls of busy work
Were really more like jail.

I longed so much to do the things
I'd never done before,
But I stayed inside my Comfort Zone
And paced the same old floor

I claimed to be so busy
With the things inside my zone,
But deep inside I longed for
Something special of my own.

I couldn't let my life go by,
Just watching others win.
I held my breath and stepped outside
And let the change begin.

I took a step and with new strength
I'd never felt before,
I kissed my Comfort Zone 'goodbye'
And closed and locked the door.

If you are in a Comfort Zone,
Afraid to venture out,
Remember that all winners were
At one time filled with doubt.

A step or two and words of praise,
Can make your dreams come true.
Greet your future with a smile,
Success is there for you!

Author Unknown

Ein ég sit og

læri Wink bara að láta ykkur vita ég er búin með áætlun sem sagt ég er á góðri leið með að endurheimta skipulagið Tounge og þar held ég að FÝLUÍSINN í gærkveldi hafi gert gæfumuninn og bjargað því sem bjargað varð Wink GOGO KJÖRÍS Heart

Nú ætla ég hins vegar að fara standa upp (þar sem ég er komin með rassæri) hreyfa mig taka svo á móti klaufdýrinu mínu og viðhenginu hans í kvöldmat Grin

GÓÐA HELGI

Smile

 


Skipulagskaos

hjá frú skipulagðri Crying

Ég hef hingað til talið mig bara nokkuð skipulagða Halo en undanfarnar vikur er ég gjörsamlega að tapa skipulaginu mínu og næ ekki að halda utan um allt sem ég er vön að gera Gasp Og svo fer ég og geri hin mesta óþarfa að skrifa BLOGG eða að fara "bloggrúnt" í staðin fyrir að læra, sem ég er alltaf að gera á síðustu stundu nú orðið Pinch (svona eru bloggvinir freistandi og skemmtilegir)

Til að þið áttið á hvað er að gerast þá fór ég að hitta minn YNDISLEGA SAUMÓ í gærkvöldi Heart (takk stelpur þið eruð bestar) þegar saumóinn var ákveðin var ég með kolvitlausa dagsetningu í kollinum Pinch svo þegar ég var nánast að renna í hlað var ég ekki viss um að ég væri að mæta á réttan stað Pinch OG ÉG MÆTTI SÍÐUST SEM HEFUR EKKI GERST ÁÐUR !!!!!!!!! Ég sem er alltaf með allt svona á hreinu Shocking

Svo er heimilistalvan að gera mér lífið leitt Devil Eins og þið hafið ekki heyrt þetta áður þá er eins og hún vilji með engu móti að ég stundi fjarnám Devil En ég er með nýja heimilistölvu Halo en hún er ekkert betri Sleeping Í henni er ég með Windows 2007 sem ég þarf að nota í Tölvufræði og nú er svo komið að hún vill ekki með nokkru móti tengjast netinu Frown  og hún ég á að skila verkefni á mánudag Crying

Ekki er ég með Windows 2007 (í þessari elsku Heart sem ég nota í hin fögin) og vill ekki hlaða því inn því ég er ekki alveg nógu klár á það til að vinna verkefnin í ritvinnslunni, þið skiljið eða ekki !!!!

Þetta er bara að gera mig #$%/$&%&Devil fúla sem fær mig til að leggjast upp í sófa með minn FÝLUÍS....í staðin fyrir að gera það sem ég á að vera gera !!!!!!!!

En ef svo illa vildi til að ég er gleyma einhverju eða einhverjum sem ég var búin að lofa eða hitta (vona að það standi nú engin á eihverjum stað og bíði eftir mér) þá látið þið mig vita  Shocking

Ég kem um áramót !!!!!!!!!!!!!!!!!

 



Gúllassúpan !!!!

Latur og frú og buðu okkur hjónum í gúllassúpu nýliðna helgi (maður er varla búin að snúa sér við í rúminu þegar það er aftur komin helgi)  ásamt okkur var vinur okkar sem er tæknistjóri hjá RÚV. Ekki slæmur félagsskapur það Smile og frábær Gúllassúpa Wink

Umræðurnar snerust nú svolitið um Friðarsúluna, þar sem tæknistjóri RÚV var nú á leið út í Viðey að sjá til þess að herlegheitin kæmu nú beint inn í stofu til okkar (þ.e.a.s. okkur sem voru ekki boðin) Átti hann að aka upptökubílnum upp á pramma sem var litlu breiðari en bílinn og flytja hann út í eynna. Það sem angraði vin okkar mest var að hann er ekki vanur að aka þessum bíl og var hræddur um að eitthvað færi úrskeiðis. Hann var farin að sjá fyrir sér fyrirsagnir blaðanna "39 ára gamall vörubílstjóri (sem hann er EKKI) fór í sjóinn ásamt tæknibíl RÚV"

Huggunarorð okkar voru þau að hann skyldi þakka fyrir að vera ekki orðin fertugur því þá myndi fyrirsögnin hljóma svona: Vörubílstjóri á fimmtugsaldri fór í sjóinn ásamt tæknibíl RÚV.

Hef ekkert heyrt frá honum síðan !!! Frown

En um nóttina eftir gúllasúpuna góðu, vaknaði (er ekki vön að vakna á næturnar) alveg fullviss að ég væri að fá ælupest Sick og það eina sem ég hugsaði um var að ég má ekki fá ælupest því það er bara til mjólk í ísskápnum !!!

Svo vakna ég betur og átta mig á því að að ég er með brjóstsviða ! Fer í eldhússkápinn að ná mér í matarsóta (gamalt húsráð) og ég gæti þess alltaf að lesa vel á staukana svo ég lendi ekki í því sama og maður hér í bæ!! Hann ætlaði sko aldeilis að fara eftir húsráðinu gamla Wink fer um miðja nótt að fá sér matarsóda í vatni, en ekki lagaðist brjóstsviðinn Woundering. Svo hann vakti frúnna sína og sagði gamla húsráðið ekki virka og honum væri svo bumbult!! Fór svo að hún fór með bónda sínum í eldhúsið að gá hverju sætti, sér þá að á eldhúsborðinu stendur LYFTIDUFTSSTAUKURINN !!!!!!!!!  Svo ég LES ALLTAF og það klikkar ekki matarsódinn virkar.

En þetta er ekki búið um morguninn þegar rafvirkinn vaknar segir hann við mig hvaða krydd var í gúllassúpunni í gær ???? Ég ætlaði að vekja þig í nótt að því að ég hélt að ég væri að fá HJÁRTAÁFALL !!! en fattaði svo að þetta var bara brjóstsviði !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

 


Unglingurinn á afmæli

í dag og er hann 19 ára Wizard Hann fer að komast af unglingsaldrinum svo ég held að ég verði að breyta bloggnafninu hans.

Einhverjar tillögur. Klaufdýrið kemur sterklega inn, þar sem hann getur verið klaufskur með eindæmum, Neyðarkallinn þar sem hann er í Hjálparsveitinni svo er hann náttúrulega Súperskáti, ofan á allt er hann að læra rafvrikjun eins og pabbi svo "ljósið hans pabba" er vel við hæfi.

En í afmælisdagabókinni segir um afmælisbörn dagsins:

Þú ert nákvæmur, árangursríkur, þróttmikill og vinnur störf þin af áhuga og krafti. Þú átt marga vini, sem dá þig. Þú ert vingjarnelgur, réttlátur og tillitssamur. Þú ert tryggur fjölskyldu þinni og átt fulla virðingu þeirra og ást.

Til hamingju með daginn Wizard


Karnivalinu frestað

Við erum að rigna niður hér í "Hördí gördí" og svo allt fari nú ekki á flot aftur bið ég þig að fara og upp og skrúfa fyrir, ég myndi fara sjálf en þar sem ég er svolítið lofthrædd á ég von á að bugast þegar ég er komin hálfa leið. En á meðan það rignir ennþá verður

Frestun afmælisdagsskrár
Vegna óhagstæðs veðurútlits á morgun  er afmælisdagskránni sem vera átti á morgun, föstudag, frestað til mánudagsins 8. október.

PLÍS SKRÚFA FYRIR NÚNA !!!!!!


Karnival í Hveragerði

                                   

60 ára afmæli Grunnskólans í Hveragerði Föstudaginn 5. október ætlum við að halda upp á 60 ára afmæli skólans.  Við ætlum að hefja daginn á hefðbundinn hátt og kenna til kl. 9:20. Um kl. 9:30 ætla nemendur og starfsmenn að safnast saman úti á skólalóð og mynda töluna 60 með því að þjappa okkur saman. Ljósmyndari verður á staðnum til að taka mynd af viðburðinum. Þegar myndatöku er lokið verður farið í skrúðgöngu um nokkrar götur bæjarins. Nemendur mega vera í búningum og munu syngja og tralla við undirleik nokkurra hljómlistarmanna og heimatilbúinna hljóðfæra.Við munum leggja af stað frá Skólamörkinni, ganga niður Breiðumörk, austur Austurmörk, upp Grænumörk og fara hringtorgið við Heilsustofnun. Þaðan göngum við Heiðmörkina, upp Reykjamörk og endum á að koma vestur Fljótsmörkina. Þegar skrúðgöngunni er lokið munum við safnast saman inn í skóla þar sem boðið verður upp á súkkulaðiköku sem fulltrúar úr hópi foreldra sjá um að baka og drekkum Kappa með sem verður í boði Vífilfells.Áætlum að afmælisdeginum ljúki um kl. 12:30 og þá fara allir til síns heima.Þessi “karnival” dagur er upphafið á röð viðburða sem verða í skólanum allt þetta skólaár í tilefni af 60 ára afmælinu og verður tilkynnt um þá sérstaklega.                                                                          

Heimspeki Charles Schultz

             
Charles Schultz er höfundur teiknimynda syrpunnar Peanuts. Þú þarft ekki að svara spurningunum.
 Lestu verkefnið og þér mun verða þetta ljóst:
 
1. Nefndu fimm auðugustu einstaklingana í heiminum.
2. Nefndu fimm síðustu sigurvegara í fegurðarsamkeppni Evrópu.
3. Nefndu tíu einstaklinga, sem hafa unnið Nobels verðlaunin.
4. Nefndu sex leikara og leikkonur, sem unnu Óskars verðlaunin á  síðasta ári.
 
Hvernig gekk þér?
 
Niðurstaðan er, að enginn okkar man fyrirsagnir gærdagsins. Þetta eru ekki  annars flokks afreksmenn. Þeir eru þeir bestu á sínu sviði.En klappið deyr út.Verðlaunin missa ljómann. Afrekin eru gleymd. Viðurkenningarnar og 
skírteinin eru grafin með eigendum sínum.

Hér eru nokkrar aðrar spurningar. Sjáðu hvernig þér gengur með þær:
 
1. Skrifaðu nöfnin á fimm kennurum sem hjálpuðu þér á þinni skólagöngu.
2. Nefndu þrjá vini, sem hafa hjálpað þér á erfiðum stundum.
3. Nefndu fimm einstaklinga, sem hafa kennt þér eitthvað mikilvægt.
4. Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem kunnu að meta þig að verðleikum.
5. Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem þér þykir gott að umgangast.
 
Auðveldara?
 
Lexían: Fólkið sem skiptir þig mestu máli í lífinu eru ekki þeir, sem hafa bestu meðmælabréfin, mestu peningana eða flestu verðlaunin.
 Heldur þeir, sem finnst þú skipta mestu máli.
 
Sendu þetta áfram til þeirra einstaklinga, sem hafa haft jákvæð áhrif á líf þitt.

 Hafðu ekki áhyggjur af því, að heimurinn sé að farast í dag. Það er nú þegar morgun í Ástralíu. (Charles Schultz)

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband