Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008
Að því að pabbi vildi það....
31.1.2008 | 16:25
Þetta er kellingin í Klettahlíðinni
27.1.2008 | 14:45
Nú erum við sem hér búum búin að fá nóg. Samþykkt var í febrúar 2007 að malbika götuna hún hefur verið meira minna lokuð og óökufær frá því í haust. Hér á þessari síðu fáið þið vikulega myndir af ástandinu og vonum við að framkvæmdum verði flýtt svo við komumst heim að húsum okkar.
Gjörið svo vel þetta er Klettahlíðin í dag: (fleiri myndir hér)
Vinir og fjölskylda | Breytt 28.1.2008 kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Alla í vegavinnu
25.1.2008 | 23:06
Hún slembra vinkona mín (þið getið lesið meira þar) er einstaklega orðheppin svo ég vísa í orð hennar:
"Kosningar eru það eina rétta í stöðunni eða það sem mér hugnast ennú frekar - að reka þetta hyski allt saman til þegnskylduvinnu við vegalagninu á Vestfjörðum og ráða þar til gerða viðskipta- og rekstrarsérfræðinga til að stýra Reykjavíkurborg að sinni. Kannski að stjórnendum fleiri sveitarfélaga yrði það víti til varnaðar. Ekki veitir nú af! "
Rassinn í ræktinni
23.1.2008 | 22:16
og HONUM gengur vonum framan þ.e.a.s. mér að mæta með hann í ræktina, ekki alveg viss um að það gangi jafnvel að láta súkkulaðið vera
En það er ekki hægt að segja það sama um mig, þegar ég fer út að tíma loknum, fjólublá í framan hálf sjónlaus vegna svitaseltu í augunum og fæturna titrandi og skjálfandi
Þá geri ég mér grein fyrir einu:
ÞAÐ ER ALLT OF LANGT SÍÐAN ÞÚ HEFUR HREYFT ÞIG KONA
Búið að moka
23.1.2008 | 16:56
Klettahlíðina en var gert í dag á meðan ég var í vinnunni
Fallega dagatalið mitt segir í dag:
Látið fortíðina eiga sig, hún er gleymd og grafin.
Lifið í heimi framtíðarinnar sem er raunverulegur og fullur af tækifærum.
Og það ætla ég að gera og er hætt að vera pirruð
Pirruð
22.1.2008 | 17:28
(get haldið áfram að cópya og peista af hinni síðunni og hér yfir aðallega fyrir Sigurð Hreiðar, frænda sem er ekki frændi minn heldur konan hans, sem finnst eitthvað erfitt að finna mig hér ,en ekki misskilja fyrirsögnina ég er ekki pirruð út af því)
Pirruð vægast sagt í dag
Þegar ég fór út í morgun að "skutla" gulldrengnum í skólann og mér í vinnuna, þá þakkaði ég mínu sæla að vera á "slyddujeppa með 4 drif" annars hefði ég mátt dúsa hér í Klettahlíðinni í dag En eins og ég hef sagt ykkur er ég ein þeirra hér í bæ sem getað mokað götur bæjarins betur og skipulagðar en allir sem þar starfa Jú allt í lagi að það sé ekki allt orðið greiðfært fyrir klukkan 8 á morgnanna, ég get sætt mig við það
EN KLUKKAN FJÖGUR hefur ekki svo mikið sem skófla verið munduð hér í Klettahlíðinni (né Laufskógum) og ekki bætir að verið er að vinna í götunni sem er lokuð í miðju og kostar mig krók í hvert skipti sem ég þarf að bregða mér af bæ og auðvitað að fara Laufskógana
Og þar sem stórir vörubílar aka hér fram og til baka eru það þeirra för sem ráða
Ekki nóg með það heldur eru Íslendingar að skíta á sig í handboltanum og Reykvíkingar eru með sandkassabörn í borgarstjórn (held samt að þau stæðu sig mun betur en þeir sem þar eru) og margir veikir í vinnunni
Dagatalið mitt segir í dag: Best er að láta það sem er mikilvægast ganga fyrir.
HELD AÐ FÁIR HAFI GERT ÞAÐ Í DAG
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mig er að finna
19.1.2008 | 22:15
Mor-testen
17.1.2008 | 14:35
Jeg var ude at gå med min 4 årige datter!
Hun samlede noget op fra jorden og ville putte det i munden.
Jeg tog det fra hende og bad hende lade være med sådan noget.
"Hvorfor?", spurgte min datter.
"Fordi det har været på jorden. Du ved ikke hvor det har været. Det er sikkert beskidt og fyldt med bakterier", svarede jeg.
Min datter kiggede fuld af beundring på mig og spurgte "Mor, hvor ved du alt det fra???".
"Uh", jeg tænkte hurtigt.... "alle mødre ved den slags ting. Det er med i mor-testen. Man er NØDT til at vide det, ellers får man ikke lov at blive mor"
Vi gik videre i stilhed et par minutter, mens hun tyggede på disse nye oplysninger.
"Åh, nu ved jeg det!, udbrød hun "hvis man ikke klarer mor testen er man nødt til at blive FAR i stedet for!!"
"Lige præcis!", svarede jeg med et stort smil.
Af teflonheilanum og súkkulaðirassinum
16.1.2008 | 21:28
er það að frétta, að ég er búin að skrá mig og teflonheilann minn í fjarnámið, sem byrjar eftir helgi og á þessari önn er það tölvufræðileg sálfræði við sjáum hvernig teflonheilanum mínum gengur með það. Legg samt ekki á hann að taka aftur þrjú fög með fullri vinnu þó svo að það hafi gengið og ég náð öllu þá gerði ég nú lítið annað en að vinna og læra
Ekki er hægt að skilja súkkulaðirassin út undan svo nú mæti ég með hann reglulega í ræktina, sé það eiginlega ekki fyrir mér ef ég myndi skilja hann eftir heima
En ég er ekki HÆTT að borða súkkulaði og um helgina er ég að spá í að gera rosalega djúsí íssósu sem sá hana Nigellu gera (það er allt svo girnilegt sem hún gerir svo ég tali nú ekki um þegar hún smakkar á því) reyndar ekki með súkkulaði í en ég get fengið mér súkkulaðís með erþaðeggibara
Frábært að vera fertug
14.1.2008 | 11:16
Elskurnar mínar þakka allar kveðjurnar, SMS, símhringingar og gjafir þið eruð yndisleg og þess vegna er frábært að vera fertug
Nú geta vinir mínir í Færeyjum farið að hlakka til því ég ásamt fríðu föruneyti kem á þessu ári Þökk sé vinum mínum og þangað til ætla ég að sitja í (vonandi koma þeir í hús fljótlega) nýju borðstofustólunum (já ég verð að máta þá alla) með glas í hönd (það getur ýmislegt verið í glasinu) skreytt silfri, fá smá nudd inn á milli og hlusta á Eivöru Pálsdóttir í færeysku peysunni
(héldu þið að þið fengjuð mynd af mér )
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)