Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Rómantík eða bara vandræðaleg móment

Ég hef oft velt því fyrir mér hvað er rómantik og hvað ekki ?

Nú þegar dag fer að stytta er voða gaman að kveikja á kertum og dempa ljósin í myrkrinu og skapa sérstaka stemmingu (sbr. kertasýki mína).

Er það rómantík ?

Eða er það ekki bara huggulegt og notalegt að skapa smá stemmingu fá sér góðan kaffibolla og eiga gott spjall við maka, vini eða jafnvel börnin sín. Ég held (af því ég er svo ægilega gáfuð) að rómantík verði ekki búin til Heart Heldur kemur hún þegar við síst eigum von á henni og er jafnvel vandræðaleg svo að maður meira að segja roðnar InLove Ég set samasem merki á milli rómantíkur og "vandræðalegs moments".Hvað gerið þið?


Millakvóti

Held að Hveragerðisbær ætti að setja auglýsingu í sunnudagsmoggan hún gæti hljóðað eitthvað á þessa leið :

Hveragerðisbær auglýsir eftri "MILLA"  gott útsvar æskilegt, fjölskylduhagir lágmark þrjú börn helst tvö á Grunnskólaaldri og eitt á leikskólaaldri (má vera öfugt) Æskilegt er að börnin stundi einhverjar íþróttir, þar sem íþróttaaðstaða barna í Hveragerði er að vera óviðunnandi og góður styrkur kæmi sér vel eins að þau séu áhugasöm um skáta og önnur félagsstörf.

Í boði er lóð hvar sem þú vilt í bænum, stærð húsnæðis á byggingareit AUKAATRIÐI !!!

Hveragerðisbær hvetur bæði konur jafnt sem karla að sækja um þó svo að æskilegra sé að MILLINN sé karlmaður þar sem meiri líkur eru á hærri tekjum hjá honum.

Einnig kemur til greina að ráða fleiri en einn.

 


Bjallan glymur

en ég virðist bara ekki heyra í henni Blush Fjarnámið mitt byrjað og ég er ekki að komast í gírinn.

Siðfræðin sem ég er búin að vera lesa 40 bls. af og er engu nær Sleeping ætlar að vera svona týpískt kjaftafag eins og félagsfræðin þar sem endalaust er hægt að rökræða hlutina fram og til baka án þess að fá botn í málið  Crying sitja í staðin með fullt af óleystum endum , fleiri en maður byrjaði á.

Ritvinnslan felst í hraðritun og að það á að HORFA Á SKJÁINN EN EKKI LYKLABORÐIÐ en ég vill alltaf vita hvað fingur mínir gera og GLÁPI Á ANDSK..... LYKLABORÐI.

Æ kannski er þetta einn af þessum dögum þar sem ég er SORRÝ, SVEKKT OG SÁR

Please kick my...........


Áttavillti unglingurinn

Unglingurinn Cool á heimilinu er búin að bæta við sig auka aukavinnu ( skólinn + fylla á Bónus) við að keyra út pizzur hér í bæ. Ætti ekkert að vera svo flókið nema að hann er svo ÁTTAVILLTUR að þetta kostar hann nokkur símtöl í foreldrana á meðan útkeyrslu stendur Blush hvar er Birkimörk og hvar er Brúarhvammur .....Woundering

Nema í gærkvöldi þá hringir hann móður og másandi: sko ég er komin langleiðina niður á Læk og er að leita að Kröggólfstöðum en bara finn þá ekki Errm

Ekki nema von elsku kallin minn Lækur er langleiðina niðrí Þorlákshöfn en Kröggólfstaðir eru hérna rétt fyrir neðan hringtorg Pinch

Svo ef þið hafði fengið pizzuna ykkar seint í gærkvöldi er um að gera að setja sig í samband við ÁTTAVILLTA UNGLINGINN Shocking

 


Bíddu og ég var ekki boðin !!!!!!!

Í dag letur Sendistova Føroya í Reykjavík upp, har móttøka er fyri innbodnum í býráðssalinum í íslendska høvuðsstaðnum

Á móttøkuni fara Jóannes Ejdesgaard, løgmaður og Ingibjørg Sólrún Gísladóttir, íslendskur uttanríkisráðharri at flyta fram røðu, og Jensina Olsen fer at spæla tónleik. Eftir móttøkuna verður sendistovan, sum liggur í Austurstræti 12, opin fyri almenninginum.

Um kvøldið skipa Norrøna Húsið í Reykjavík, Norðurlandahúsið í Føroyum og sendistovan fyri konsert í Norrøna Húsinum. Luttakarir verða Budam, Jensina Olsen og Jógvan Hansen við íslendska bólkinum Izafold.

Skráin fyri dagin sær soleiðis út:
Kl. 15.00 – 16.30 Móttøka fyri innbodnum í Býráðssalinum í Reykjavík

Kl. 17.00 – 19.00 Opið hús í føroysku sendistovuni í Austurstræti 12, har øll eru vælkomin inn á gólvið.

Kl. 22.00 – 01.00 Konsert í glassalinum uttanfyri Norrøna Húsið í Reykjavík.Tey, ið føra fram, eru BUDAM, Jensina Olsen og Jógvan Hansen & Izafold.


Hveragerði

stóð sig með eindæmum vel í spurningarkeppni bæjarfélaganna í sjónvarpinu í kvöld Smile 

Þau Siggi, Svava og Fjölnir sýndu snilldarleik í oft erfiðari spurningum en andstæðingarnir. ( Kannski fannst mér þær bara erfiðari gjarnan fá komment um það frá ykkur) Þau áttu sigurinn svo sannarlega skilið Whistling

Fjölnir kom sérstaklega á óvart, hnittin og meinfyndin. Þetta er bara mjög gott lið og sýnir bara það hversu gáfaður maður verður á að búa fyrir utan höfuðborgina Grin

EN ÁFRAM HVERAGERÐI og til hamingju með sigurinn i kvöld Wizard

 


Hér er kennari, um kennara, frá kennara, til kennara

Ég átti mér eitt sinn draum, draum um að verða kennari.

Ég ætlaði að verða íslenskukennari, kenna unglingum að sjá Gísla Súrsson sem Súperman síns tíma.

Kenna kjaftforum unglingsstrákum að beygja sögnina að ríða.

Láta unglinga þýða dönsku bókina "Kærlighed ved forste hik" endurskrifa hana á meinfyndri íslensku svo hún verði jafnfyndin og á dönsku.

Vera í flatbotna skóm og pilsi.

En ég á mér ekki þann draum lengur.

ÞAÐ KOM VERKFALL ÞEGAR ÉG VAR Í MENNTASKÓLA

Kennarar kunna ekki að semja !!!!! Verkföll þeirra hafa ekki áorkað neinu nema "við sömdum af okkur" og strax eftir verkfall byrjar barlómur um slæm laun. Ég er ekki að segja að laun kennara séu viðunnandi en skynsemin segir að verkföll kennara hafa ekki skilað tilætluðum árangri

AF HVERJU SEMJA ÞEIR EKKI SVO ALLIR VERÐI ÁNÆGÐIR ?????

Kennarar eru margir hverjir á sama þroskastigi og nemendurnir: heyrðu þessi fékk svona síma í sína stofu af hverju fæ ég ekki alveg eins (þetta er dagsatt og heyrt á göngum skólans) og oft á tíðum í miklum sandkassaleik við samkennara sína.

Í dag þakka ég verkfallinu að ég sé ekki kennari með fötu og skóflu í sandkassaleik !!!!

 


Halló SOS

hvað varð eiginlega um alla bloggvini mína !!!!

Þeir birtast ekki á síðunni minni, getur verið að það sé eitthvað bilað eða er þetta eitthvað stillingaratriði á síðunni hjá mér.

Ef svo er vill einhver segja mér hvað ég get gert til þess að laga það.


Sem betur fer erum við ekki öll sömu skoðunar

Áður en þið lesið þetta vil ég biðja ykkur um að skoða færsluna hér fyrir neðan sem nefnist mússisjúk og horfa á myndbandið.  

 

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4301897/4

Get ekki því miður EKKI verið sammála Atla Bollasyni

Mannleg mistök

Eivør – Mannabarn / Human Child stjörnugjöf: &sstar;{sstar}

ÞAÐ ER erfitt að skýra hvað varð til þess að Eivør Pálsdóttir, sem fyrir örfáum árum var frekar töff tónlistarmaður sem vann skemmtilega með þjóðlega tónlist, lét plötu á við Mannabarn frá sér.

ÞAÐ ER erfitt að skýra hvað varð til þess að Eivør Pálsdóttir, sem fyrir örfáum árum var frekar töff tónlistarmaður sem vann skemmtilega með þjóðlega tónlist, lét plötu á við Mannabarn frá sér. Hvað sem sönghæfileikum Eivarar líður – og þeir eru ótvíræðir – þá eru hvílík og önnur eins leiðindi fátíð. Lögin eru einhvers konar bragðdaufur þjóðlagakokkteill; norrænum, keltneskum og arabískum þjóðlagahefðum hefur verið splæst saman, og amerískur blús gerir líka vart við sig. Klabbinu heila er síðan pakkað inn í léttbylgjulegar, dauðhreinsaðar, gamaldags og hreint út sagt hallærislegar útsetningar.

Í "Mother Teresa" er grunnurinn t.a.m. amerískur kassagítar- og orgelblús eins og hann gerist minnst spennandi, rafmagnsgítarinn hljómar eins og af hetjurokkplötu sem hefur elst mjög illa, og Eivør brýst út í arabískan fíling óforvarandis með tilheyrandi bjánahrolli. Lagið hefur enga laglínu svo hægt sé að tala um, heldur er "djammað" á frösum um móður Teresu í rúmar sex mínútur. Þó er lagið hátíð við hliðina á næsta lagi, "Trees in the Wind", sem hljómar eins og arfaslök tyrknesk karókíútsetning. Ekki er "You Are All" miklu betra, einstaklega væmið lag sem græðir ekkert á flautu í stíl við "My Heart Will Go On" (temalaginu úr Titanic). "Do not Weep" og "Listen" eru bærileg en ná engan veginn að hífa heildarbrag plötunnar upp svo um muni. Það eina sem kveikir í undirrituðum er lokalagið "Elisabet og Elinborg"; óður til systra Eivarar, en þær syngja með henni í laginu og búa til einlæga stemningu sem öll hin lögin skortir sárlega.

Eivør er ekki lengur tröllabarnið sem nam land fyrir nokkrum árum, nú vill hún láta koma fram við sig sem mannabarn. Hún er m.ö.o. ekki lengur sérstök, heldur vill hún vera alveg eins og allir hinir. En menn eru mistækir og það má hver sem lætur Mannabarn undir geislann reyna svo um munar.

Atli Bollason


Aukatími í Færeyesku

 

Þar sem ég bjó í Færeyjum um stundarsakir (og er svo heppinn að skilja smá) var ég mikið spurð um orðin sem komu fram í "færeyesku dominos"sjónvarpsauglýsingunum.

T.d "bert starvsfólk" ef þið eruð á leið til Færeyja og sjáið þetta á hurð inn í verslun skuluð þið ekki láti ykkur dreyma um að fyrir innan þessar dyr sé fullt af starfsfólki að "stripplast" nei því þetta er AÐEINS FYRIR STARFSFÓLK.Fleiri orð komu fram eins og kamar það þýðir herbergi.Svo það er ekkert að því að segja "bert starvsfólk á kamrinum" En svo eru líka nokkur bannorð sem ekki er gott að segja á almannfæri í Færeyjum eins og Lalli(aumingja hann) það er einfaldlega píka W00t fleiri orð

mogga=samfarir  afgangur=sæði  limir=félagsmaður  verja=vörn(mikið notað  í íþróttum)  fleygja sér=rúnka sér  það er nú einhvern vegin auðveldara að skrifa þessi orð en að segja þau Whistling

 Svo eru fleiri skrýtinn orð eins og reif=rass  kavi=snjór  beina vegin= strax   skít=fullur og bara að því við notum orðið drullusokkur þá er það sprúttlappir á færeysku hljómar ekkert sérlega vel

liðugt = búið        skúli = skóli         gáva = gjöf         gevast = hætta    dofin =latur  rumpa = skárra orðið yfir rass    skógvar =skór    tími ikki = nenni ekki  beinið sefur = náladofi       eta sig stífan = pakksaddur   grindarlokkur = hrossafluga múss = koss  klem = knús svo er bara að æfa framburðinn það er mikið tji tjá og tí   gangi ykkur vel Smile


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband